Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2025
31.8.2025 | 14:13
Sannleikurinn sigrar að lokum
Robert W Malone MD, sem setu á í ACIP Ráðgjafanefnd Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) um bóluefni, telur raunverulegu ástæðuna fyrir nýlegum afsögnum nokkurra stjórnenda CDC vera heimild sem ráðgjafanefndin fékk til að skipa starfshóp sem ætlað er m.a. að rannsaka öryggi og virkni COVID bóluefnanna. Stjórnendurnir hafi gert sér grein fyrir að blekkingar CDC um virkni og skaðleysi efnanna væru komnar á endastöð og sannleikurinn væri á hraðri leið upp á yfirborðið. Titrings gætir í systurstofnunum Embættis landlæknis í Evrópu vegna skipunar starfshópsins. Hvers vegna liggur í augum uppi. Klippan er af upptalningu verkefna.
31.8.2025 | 10:32
48,5% hækkun kostnaðar vegna leyfisskyldra lyfja frá 2021
Í umsögn Landspítalans um leyfisskyld lyf (að megninu sem meðferð við krabbameini) í fjárlögum fyrir árið 2025 kemur fram að spítalinn áætli að heildarkostnaður lyfjanna á árinu 2025 verði 18.803 milljónir en þar sem fjárlagaliðurinn í frumvarpinu hljóði upp á 16.725 milljónir nemi frávikið 2.078 milljónum. Kostnaður leyfisskyldra lyfja nam 12.660 milljónum 2021 og verður því 48,5% hærri á þessu ári.
30.8.2025 | 06:31
Hrikalegur slóði mistaka
Við Helgi vekjum í Morgunblaðinu í dag athygli á harðri gagnrýni formanns læknafélagsins á störf Ölmu D. Möller fyrrverandi landlæknis sem gegndi embættinu frá árinu 2018 þar til hún settist í stól heilbrigðisráðherra um síðustu áramót.
Formaður lækna gagnrýnir heilbrigðisráðherra
Formaður læknafélagsins harmar þá stöðu sem upp er komin í krabbameinsmeðferðum hér á landi þar sem biðlistar lengjast og fólk hefur jafnvel þurft að leita út fyrir landsteinana til að fá viðeigandi meðferð. Telur hún að heildarsýn yfir heilbrigðiskerfið hér á landi vanti algjörlega og að hluta vandans megi rekja til þess. Mér finnst sorglegt að fá þær fréttir að við séum komin í þá stöðu að þurfa að senda fólk utan í meðferð sem á sjálfsögðu að vera í boði hér sagði formaðurinn. Stefnuleysið gengur ekki lengur og ef maður hefur ekki yfirsýn yfir þá getur maður misst bolta. Það er farið að gerast þarna og það mun gerast víðar á komandi árum ef við ætlum að halda áfram að ýta þessu verkefni á undan okkur og ekki takast á við það sagði formaður læknafélagsins.
Engum dylst að hörð gagnrýni formannsins á stöðu og þróun heilbrigðiskerfisins beinist að megninu að störfum Ölmu D. Möller fyrrverandi landlæknis sem gegndi embættinu frá árinu 2018 þar til hún settist í stól heilbrigðisráðherra um síðustu áramót. Að heilbrigðisráðherra sé gagnrýndur af formanni læknafélagsins með jafn afgerandi hætti og gert er í viðtalinu kemur ekki á óvart þar sem trúverðugleiki lækna hefur dalað meðal landsmanna á liðnum misserum. Ljóst er að vöntun á geislafræðingum við Landspítalann á þátt í lengingu biðtíma eftir krabbameinsmeðferð. Það er óviðunandi staða sem aðilar verða að ná samkomulagi um að lagfæra. En það er miður að formaður læknafélagsins hafi farið út af sporinu í viðtalinu þegar hann skýrir ófullnægjandi stöðu meðferðar krabbameinssjúklinga með vísan til hratt vaxandi meðalaldurs þjóðarinnar. Sú skýring heldur ekki vatni þar sem meðalaldur þjóðarinnar hafði í ársbyrjun lengst um 0,5 ár (1,3%) frá 2021 og getur því ekki skýrt fjölgun nýrra tilfella krabbameina um 22% og 48,5% hækkun kostnaðar vegna leyfisskyldra lyfja.
Raunalegt er að sjá formann læknafélagsins bætast í hóp stjórnenda Landspítala sem skýra óviðunandi bið krabbameinssjúkra eftir meðferð með vísan til lengri meðalaldurs landsmanna. Enginn nefnir aðalástæðu lengri biðtíma eftir meðferð og hækkun kostnaðar vegna leyfisskyldra lyfja sem er að sprenging hefur orðið í fjölgun krabbameina frá bólusetningu landsmanna gegn Covid á árinu 2021.
Þær gríðarlegu áskoranir sem formaður læknafélagsins vísar til í viðtalinu felast ekki síst í nauðsyn viðhorfsbreytingu stjórnenda. Læknar ásamt stjórnendum Landspítalans og Krabbameinsfélagsins verða að rjúfa þögnina um skaðsemi bóluefnanna. Þeir eiga ekki lengur að kóa með fyrrverandi landlækni og afneita augljósum staðreyndum. Forsenda þess að tekið verði markvisst á vanda krabbameinssjúkra er að horfst sé í augu við afleiðingarnar af bólusetningu 80% landsmanna með svo til óreyndum bóluefnum sem að auki byggðu á nýrri tækni. Traust er grunnstoð heilbrigðiskerfisins. Þegar traustið brestur, brestur allt. Læknar, stjórnendur og ráðherrar verða að skilja að traustið byggist á sannleika ekki á þögn eða undanbrögðum.
Við erum að horfa á afleiðingar af stærstu læknamistökum Íslandssögunnar.
Höfundar:
Þorgeir Eyjólfsson eftirlaunaþegi
Helgi Örn Viggósson hugbúnaðarsérfræðingur
29.8.2025 | 09:17
14,3 földun nýrra POTS greininga
Á Íslandi bregðast Sjúkratryggingar, að ráðgjöf Landlæknis og með skilningi heilbrigðisráðherra, við fjölgun sjúklinga með POTS með því að hætta greiðsluþátttöku í vökvagjöf sjúklinga sem þeim er ráðlagt af læknum. Sparnaðarviðbrögðin í kerfinu kunna að eiga sér skýringar sem sjá má í niðurstöðum tölfræðilegrar marktækrar rannsóknar á tíðni heilkennisins POTS (postural orthostatic tachycardia syndrome) fyrir og eftir Covid sem leiðir í ljós 14,3 falda tíðni nýrra tilfella. Í grein sem sett var inn á vefinn Heilsuveru 1. sept. 2022 lýsir heilkennið sér m.a. með aukinni hjartsláttartíðni vegna stöðubreytinga. Að hjartsláttur á mínútu aukist um 30 (fullorðnir) til 40 (unglingar) slög við stöðubreytingu (liggjandi í uppistandandi) í 10 mínútna prófi er meðal forsendna greiningar. Á gröfunum úr niðurstöðum rannsóknarinnar er upphaf Covid skilgreint í byrjun mars 2020 (lóðrétta brotna línan). Athygli vekja óvenju kröftug viðbrögð gervigreindarforrits aðspurt um hugsanlegt samband margföldunar tíðni POTS í kjölfar fjöldabólusetninganna. Í ítarlegu svarinu er allt gert til að sannfæra fyrirspyrjandann um að þarna á milli geti alls engin tengsl verið. Slíkur var sannfæringarkrafturinn að erfitt var að verjast þeirri hugsun að þjálfarar forritsins hafi þegið umbun frá lyfjaframleiðanda fyrir verkið.
28.8.2025 | 08:49
Loksins horfst í augu við staðreyndir
Því ber að fagna að heilbrigðisráðherra horfist loks í augu við staðreyndir þegar tilkynnt er um stofnun vinnuhóps um heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem takast á við vandamál í kjölfar Covid. Hlutfall landsmanna á vinnumarkaði hefur liðlega tvöfaldast frá 2022 sem leitað hafa til Tryggingastofnunar um endurhæfingarlífeyri vegna veikinda. Á fimm ára tölfræðiyfirliti Landspítalans má sjá að einstaklingum sem leituðu til spítalans fjölgaði um 17,6% frá 2022 á sama tíma og íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 4,6%. Þar sem verkefnin sem vinnuhópnum er ætlað að finna lausnir á hafa blasað við misserum saman ætti ekki að taka langan tíma fyrir hópinn að ljúka störfum. Það er mikilvægt fyrir hina fjölmörgu sem misst hafa heilsu og starfsþrek.
27.8.2025 | 11:47
Sólargeisli og kraftaverk
Skaðinn af Covid fjöldabólusetningunum á heilsufar landsmanna leynir sér ekki á myndinni úr fimm ára tölfræðiyfirliti Landspítalans. Einstaklingum sem leituðu til spítalans fjölgaði um 17,6% frá 2022 á sama tíma og íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 4,6%. Sólargeislinn í starfsyfirliti Landspítalans er 4% fjölgun fæðinga á fyrstu 6 mánuðum ársins en þeim hefur fækkað ár frá ári sem helst í hendur við þróun erlendis og á sér skýringar í niðurstöðum rannsókna sem hver af annarri staðfesta skaðleg áhrif Covid bóluefnanna á æxlunarfæri beggja kynja. Starfsmenn Landspítalans hafa unnið kraftaverk með því að sinna á liðnu ári 18% fleiri en 2022 á sama tíma og stöðugildum/ársverkum hefur fjölgað um 5%.
26.8.2025 | 15:05
Tjónið kemur fram af vaxandi þunga
Komum á svið hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu fjölgaði um 13% og komum á svið bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu fjölgaði um 15% mánuðina janúar til og með júní á þessu ári borið saman við sama tímabil 2024. Landsmönnum fjölgaði um 1,5% á milli ára. Komum á bráðamóttökuna í Fossvogi fækkaði um 1,4% á fyrri helmingi ársins. Aukið álag á Landspítalann kemur ekki á óvart þar sem hlutfall landsmanna á vinnumarkaði sem þiggur endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun hefur liðlega tvöfaldast frá 2022.
25.8.2025 | 09:31
115% hækkun hlutfalls landsmanna á endurhæfingarlífeyri TR frá 2022
Á árinu 2022 fengu 1,3% landsmanna á aldrinum 18 til 66 ára greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Réttur til endurhæfingarlífeyris hjá TR virkjast ekki fyrr en önnur réttindi hafa verið fullnýtt og því þarf veikindarétturinn hjá vinnuveitenda og réttindi til greiðslna úr sjúkrasjóði stéttarfélags að vera fullnýttur. Ljóst er af tölum ársins 2023 að veikindaréttur hefur verið orðinn fullnýttur því á árinu fengu 2,2% landsmanna greiddan endurhæfingarlífeyri, sem er hækkun hlutfallsins um 69%. Óheillaþróunin heldur áfram á árinu 2024 þegar 2,8% landsmanna á aldrinum 18 til 69 ára þáðu endurhæfingarlífeyri hjá TR. Af tölunum sést að hlutfall landsmanna á vinnumarkaði hefur liðlega tvöfaldast frá 2022 sem leitað hafa til TR um endurhæfingarlífeyri vegna veikinda.
14.8.2025 | 17:27
Bólusetningar og umframdauðsföll
Myndin sýnir uppsafnaðar stærðir umframdauðsfalla á Íslandi frá byrjun 2020 og uppsafnaðan fjölda bólusetninga frá áramótum 20/21 til loka árs 2022. Það var 11.3.2020 sem WHO gaf út yfirlýsingu þess efni að Covid-19 væri heimsfaraldur. Á vinstri ás (rauð lína) eru uppsöfnuð prósenta umframdauðsfalla og á hægri ásnum (blá lína) er uppsafnaður fjöldi bólusetninga. Bláa línan byrjar við áramót 20/21 þegar bólusetningar hófust eða 9 mánuðum eftir að faraldrinum var lýst yfir. Til þess tíma að bólusetningar hófust voru umframdauðsföllin tiltölulega fá en fáum vikum eftir að fjöldabólusetningar hófust taka dauðsföllin að hlaðast upp. Horfandi á línuritið blasir við að fullyrðingin um að bóluefnin hafi bjargað lífi milljóna er vægt sagt ósannfærandi. Rannsóknir staðfesta hið gagnstæða. Hér er hlekkur á niðurstöður stærstu rannsóknarinnar sem er frá júlí 2024 og náði til 2,7 milljarða einstaklinga, eða 35% mannkyns í 125 löndum. Niðurstöðurnar sýna fylgni bólusetninga og umframdauðsfalla og leiðir líkur að 16,9 milljón dauðsföllum á heimsvísu sem rekja má til bóluefnanna á þriggja ára tímabilinu 2020 til 2022.
13.8.2025 | 12:29
Tölur Hagstofunnar rangar
Utanríkisráðherra segir Íslendinga þurfa að viðurkenna að tölur Hagstofu Íslands um viðskipti milli landa séu rangar. Getur hugsast að öðrum tölum Hagstofunnar sé varlega treystandi? Hvað með tölur um fæðingar og andlát sem unnar eru og birtar að hentugleika Embættis landlæknis samkvæmt samstarfssamingi stofnanna frá mars 2023?