22.8.2024 | 07:32
Æxlunarfærin sluppu ekki
Ekki horfir gæfulega um þróun frjósemi á árinu sem er að líða því lifandi fæddum börnum á Landspítalanum fækkaði um 7,2% og fæðingum um 6,7% á fyrstu sex mánuðum ársins. Ekkert af líffærakerfunum virðist komast óskaddað frá bólusetningunum með mRNA efnunum við Covid-19 eins og starfsemi æxlunarfæra landsmanna sýnir. Stefnir því í að Hagstofan geti þriðja árið í röð notast við óbreytta fyrirsögn fréttar af frjósemi sem yrði að ári: Frjósemi aldrei verið minni en 2024.
Línuritið sýnir þróun fjölda kvenna á barneignaaldri og fjölda fæðinga (báðar stærðir settar á 100 2019). Að skýra fækkun fæðinga á síðustu misserum sem eðlilega í kjölfar fjölgunar barneigna eftir innilokanir er ekki lengur trúverðugt.
17.8.2024 | 07:41
Tölur um fjölda látinna feimnismál
Evrópska hagfræðistofnunin hefur uppfært gagnagrunn umframdauðsfalla einstakra landa Evrópu með júní tölum. Hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi í júní er ekki að finna í töflunni.
Samkvæmt Eurostat var hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi 17,7% í maí s.l. þegar það var 1,7% fyrir ESB. Á vef Embættis landlæknis hefur verið að finna tölur um hlutfall umframdauðsfalla en af ókunnum ástæðum hefur taflan ekki verið uppfærð frá 10.6. s.l. en til þess tíma var hún uppfærð mánaðarlega og síðast með apríl hlutfallinu.
Tímabil grafarþagnar um fjölda látinna Íslendinga er hafið. Landsmenn komast næst því að geta sér til um fjölda dauðsfalla með talningu dánartilkynninga í blaði allra landsmanna.
Súlurritið sýnir hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi (rauðar súlur) og ESB (bláar súlur) síðustu 11 mánuði samkvæmt vef Evrópsku hagstofunnar. Tafir á upplýsingum um fjölda látinna Íslendinga endurspeglar vandræðaganginn við framleiðslu dánartalna þar sem Íslendingum sem mæta ótímabærum dauðdaga fyrir tilverknað mRNA bóluefnanna fækkar ekki þrátt fyrir að mjög hafi dregið úr áhuga eldri borgara á bólusetningum.
27.7.2024 | 20:03
Hætta á hjartavöðvabólgu margfaldaðist eftir mRNA covid bólusetningu
27.7.2024 | 10:32
Vísindagreinar um skaðsemi covid bóluefnanna
26.7.2024 | 05:40
Af hverju hætti Þórólfur?
25.7.2024 | 18:19
Meðalævin styttist tvö ár í röð
25.7.2024 | 12:34
Dánartíðni ungbarna hækkar um 64% og nýbura um 47% milli ára
24.7.2024 | 15:33
Frasinn súrnar
23.7.2024 | 21:30