Leita í fréttum mbl.is

Orsakasambandið geirneglt af þýskri nákvæmni

Það er að bera í bakkafullan lækinn að kynna til sögunnar enn eina rannsóknina sem leiðir sterkar líkur að orsakasambandi covid bólusetninganna og fjölgunar dauðsfalla. Niðurstöður þýskrar rannsóknar, sem enn hefur ekki gefist tóm til að ritrýna, á áhrifum Covid-19 á dauðsföll í 16 sambandsríkjum yfir þriggja ára tímabil bætist í ört stækkandi hóp rannsókna sem leiða sterkar líkur að orsakasambandi Covid bólusetninganna og fjölgunar dauðsfalla. Mantran um að fylgni sé ekki sama og orsök á ekki lengur við þegar fjallað er um mRNA efnin og umframdauðsföllin. Svo margar eru rannsóknirnar orðnar hverra niðurstöður leiða sterkar líkur að orsakasambandi.Conclusion German Federal States


Ísland skólabókardæmi á heimsvísu um líklegt orsakasamband

Ísland er á meðal 110 landa af 125 löndum í nýrri rannsókn þar sem ítarleg gögn um bólusetningar ásamt upplýsingum um dauðsföll voru fyrirliggjandi og aðgengileg rannsóknaraðilum. Í löndunum 110 (án undantekninga) var fylgnin milli bólusetninga og fjölgun dauðsfalla augljós. Klippan sýnir fylgni bólusetninga og dauðsfalla á Íslandi og er landið í hópi þjóða þar sem fjölgun dauðsfalla í kjölfar örvunarbólusetninga seinni part árs 2021 er greinileg en dauðsföllum fjölgaði mikið hérlendis og náðu þau hámarki í mars 2022. Ísland hefur um margra mánaða skeið verið í hópi þeirra þjóða Evrópu sem flest hafa umframdauðsföllin. 

Niðurstöður óvenju stórrar rannsóknarinnar greina áhrif misráðinna sóttvarnaviðbragða stjórnvalda víða um heim og hvernig þau leiddu til fjölgunar dauðsfalla. Hvergi í heiminum fækkaði dauðsföllum í kjölfar bólusetninga gegn Covid og telja rannsakendur auðsætt að fullyrðing þess efnis að bóluefnin hafi bjargað milljónum mannslífa eigi ekki við rök að styðjast.

Island umframd RancourtDefender um rannsokn Rancourt


Gervisteik á grillið – held ekki

Bretland er fyrsta landið í Evrópu sem heimilar sölu á gervikjöti (kjöti sem er ræktað utan líkama dýrs) sem gæludýrafóður. Fyrirtækið ræktar kjötið frá dýrafrumum. Fyrsta varan hefur kjúklingagrunn og er ætluð hundum. Hins vegar fer fyrirtækið ekki leynt með framtíðarsýnina sem er að rækta kjöt fyrir menn. Draga má í efa að almenningur komi til með að hafa áhuga á að henda steik á grillið sem byggir á framtíðarsýn Bill Gates og félaga hjá WHO á því hvað sé mannkyni fyrir bestu.

"Artificial meat – also known as in vitro, cultivated, cell-based, clean, cultured, lab-grown or slaughter-free meat – is meat that is grown in a cell culture outside an animal’s body instead of inside, naturally."Fake meet


Aðalatriðið í úrskurði Evrópudómstólsins

Af ókunnum ástæðum hefur meginstraumsmiðlum láðst að greina frá aðalatriðinu í niðurstöðu Evrópudómstólsins þar sem hann fjallaði um samninga framkvæmdastjórnarinnar um kaup á covid bóluefnum af lyfjaframleiðendum. Dómstóllinn kvað upp úrskurð um að...

Að gefast upp er ekki til í orðabók Þórdísar

Þórdís B. Sigurþórsdóttir, sem er einn af stofnendum Heilsuvonar sem eru hagsmunasamtök fólks með C-19 sprautuskaða, hefur endurnýjað ósk um að fá afrit af öllum bóluefnasamningum íslenska ríkisins við framleiðendur efnanna með vísan til nýfallins...

Íslenska reynslan af skaðsemi covid efnanna eftir framleiðendum

Ekki er að finna hliðstæð opinber gögn hér á landi um bólusetningarstöðu látinna landsmanna eins og Tékkneska hagstofan hefur afhent fyrirspyrjanda á grundvelli þarlendra upplýsingalaga (sjá fyrri færslu). En með hlutfallsreikningi fjölda bólusetninga...

Dánarlíkur Moderna bólusettra 50% hærri en Pfizer

Tékkneska hagstofan hefur svarað fyrirspurn um bólusetningarstöðu látinna á árunum 2020 til 2022. Steve Kirsch, verkfræðingur frá MIT og sá sem fann upp þráðlausu músina, hefur unnið með gögnin og teiknaði línuritið að neðan sem sýnir hlutfall látinna...

90% af áætlaðri sölu BioNTech 2024 spáð á Q4

Afkomuspá BioNTech gerir ráð fyrir að 90% af sölutekjum ársins falli til á fjórða ársfjórðungi . Spáin er hluti af afkomutilkynningu fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung sem sýndi sölusamdrátt upp á 86% miðað við sama fjórðung á árinu 2023. Helsta...

Að draga lærdóm af mistökunum

Umræða fer vaxandi um heim allan hverjir beri ábyrgð á Covid-19 og skaðanum sem fylgdi á heilsu almennings og á efnahag ríkja. Hvar ábyrgðin liggi á tilurð og notkun bóluefna sem í sumum löndum voru gerð sem næst að skyldu með því að gera bólusetningu að...

Atlaga ESB að málfrelsinu

Hafi notendur X velkst í vafa um mikilvægi kaupa Elon Musk á Twitter fyrir óhefta og upplýsta umræðu um málefni og fréttir líðandi stundar er sá vafi ekki lengur fyrir hendi. Hvernig meginstraumsmiðlar, eins og CNN sem dæmi, færðu almenningi villandi og...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband