Leita í fréttum mbl.is

Auglýsingin sem féll í grýttan jarðveg

Margir muna auglýsinguna í Morgunblaðinu í maí 2021 á upphafsvikum Covid bólusetninganna. Í auglýsingunni var almenningur hvattur til að tilkynna aukaverkanir í kjölfar bólusetninga til Lyfjastofnunar eins og vera ber. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, var óhress með auglýsinguna af ýmsum ástæðum og þar á meðal að hún taldi upptalningu á hugsanlegum aukaverkunum af völdum bóluefnanna vera „óstaðfestar og jafnvel kolrangar.“ 

Nú þegar liðin eru þrjú ár frá því auglýsingin birtist er morgunljóst öllum sem til þekkja að listinn í auglýsingunni um hugsanlegar aukaverkanir af völdum bóluefnanna er hvergi nærri tæmandi. Það geta þúsundir Íslendinga vottað sem daglega takast á við eftirmál efnanna á eigin heilsu. Í neðsta boxið um andlát geta fjölskyldur hundruða einstaklinga sem látist hafa fyrir aldur fram hakað.Auglysing aukaverkanir mai 2021 mbl

 


Keypti sér skó og lést

Mikilvægt er fyrir landsmenn að fara ekki í grafgötur um viðhorf trúnaðarmanna þjóðarinnar í efstu lögum stjórnsýslu á heilbrigðissviði til heilsu og velferðar almennings. Til þess að auðvelda fólki skilning á viðhorfum sóttvarnalæknis fylgja hér að neðan fjórar tilvitnanir í svar sóttvarnalæknis við fyrirspurn um viðhorf hans til niðurstaðna rannsóknar á krufningaskýrslum. Niðurstöður rannsóknarinnar sem um var spurt leiddi í ljós að af 325 krufningum voru 73,9% dauðsfallanna rakin til Covid efnanna: 

  • „Í raun finnur þessi rannsókn engin tengsl milli Covid-19 bólusetninga og andláta og ekki ástæða til að eyða miklum tíma í að liggja yfir henni. Það að einhver hafi fengið bólusetningu og svo látist segir ekkert til um orsakasamhengi frekar en að viðkomandi hafi keypt sér skó og svo látist.“
  • „Þá fóru 3 læknar yfir tilfellin og ákváðu hverjir dóu vegna „banvæns bóluefnaheilkennis“ (fatal vaccine injury syndromes), sem við þekkjum ekki sem viðurkennt hugtak. Síðan er reynt að búa til einhverja ástæðu fyrir því hvernig bóluefnin valdi skaða, að það séu einhver áhrif gaddaprótínsins, sem er ekki neitt sem er búið að sýna fram á á nokkurn hátt eða er trúverðugt. Þessir 3 aðilar hafa reyndar áður skrifað hluti sem eru misvísandi eða beinlínis rangir um bóluefni og bólusetningar.“
  • „Á hinn bóginn eru til fjölmargar rannsóknir sem sýna að Covid-19 bóluefni auka ekki hættu á dauða. Og þvert á móti vernda þau þá sem eru í meiri hættu á alvarlegum afleiðingum af Covid-19 gegn alvarlegum veikindum og dauða.“
  • „....en þetta snýst um að vega áhættu miðað við ávinning og það er algjörlega búið að sýna fram á það að Covid-19 bóluefnin eru gagnleg og ávinningur langt umfram áhættu.“

Eftir svar sóttvarnalæknis „..að einhver hafi fengið bólusetningu og svo látist segir ekkert til um orsakasamhengi frekar en að viðkomandi hafi keypt sér skó og svo látist“ er auðveldara að átta sig á þeirri hingað til óskiljanlegu staðreynd að þrátt fyrir tilkynningu um 31 andlát einstaklinga í kjölfar bólusetninga frá janúar til ágúst 2021 var bólusetningum fram haldið sem enginn væri morgundagurinn.

Auk fjölda dauðsfalla var orðið ljóst að bóluefnin hindruðu hvorki smit né sýkingu. Hefði bólusetningum verið hætt þegar þessar sterku vísbendingar um skaðsemi bóluefnanna voru stjórnendum heilbrigðisþjónustunnar ljósar hefði mátt koma í veg fyrir ótímabær andlát hundruða Íslendinga að ekki sé minnst á þær þúsundir sem eiga við sjúkdóma og eftirmál þeirra að etja daglega.Lyfjastofnun tilkynningar um andlát


Dreifiritið staðfestir skaðsemi efnanna

Myndin sýnir dreifingu hlutfalls landsmanna 29 landa Evrópu (punktur á grafinu fyrir hvert land) sem þáðu frumbólusetningu og fyrstu örvunarsprautuna gegn Covid-19 á lóðrétta ásnum og meðaltal mánaðarlegra umframdauðsfalla frá janúar 2022 til og með apríl 2024 á lárétta ásnum. Að leitnilína punktanna hallar upp til hægri sýnir að hærra hlutfall umframdauðsfalla fylgir hærra hlutfalli bólusetninga.

Bólusetningar gegn Covid-19 byggðu í upphafi á forsendum sýkinga- og smitvarna. Fljótlega varð ljóst að bóluefnin uppfylltu ekki væntingar um smitvörn en þrátt fyrir það var bólusetningum framhaldið með þeim rökstuðningi að þau drægju úr sjúkdómsáhrifum og fækkuðu dauðsföllum. Myndin sýnir að sá rökstuðningur stenst ekki frekar en sá fyrri. Ef bóluefnin hefðu fækkað dauðsföllum hefði leitnilínan hallað niður frá vinstri til hægri.Dreifirit boluset & umframdf

Punkturinn fyrir Ísland lenti út fyrir grafið til hægri með 68,8% bólusetningarþekju og 38,5% hlutfalli umframdauðsfalla.


Margföld hætta á heilablóðfalli

Covid mRNA bóluefnin eru 200 sinnum líklegri til að valda blóðtappa í heila en öll önnur bóluefni samanlagt samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Dr. Peter McCullough og samstarfsmanna. Rannsóknin byggir á talningu skaðatilkynninga yfir 34 ára skeið vegna...

Hræðsluáróður hefst að nýju

Að það teljist tilefni forsíðufréttar að örfáir greinist með Covid síðustu vikurnar vekur spurningar. Hugsanlega er blaðið að leggja sóttvarnalækni lið við að undirbúa landsmenn fyrir Covid mRNA örvunarbólusetningu haustsins. Ekki mun veita af allri...

600 starfsmenn í fullu starfi höfðu ekki undan

Í málshöfðun bandarísku ríkjanna fimm (Kansas og fl.) á hendur Pfizer kemur fram að lyfjaframleiðandanum höfðu í lok febrúar 2021 borist 158.893 tilkynningar um aukaverkanir í gagnagrunn fyrirtækisins, þar á meðal tilkynningar um 1.223 dauðsföll....

Nöturlegur lestur ákæruatriða

Málshöfðun Kansas ríkis gegn Pfizer hefur þyngst þar sem a.m.k. fjögur önnur ríki hafa ákveðið að fylkja sér um málshöfðunina gegn lyfjaframleiðandanum. Í klippunni má sjá helstu atriði ákærunnar en í hlekk er nánari grein gerð fyrir ákæruatriðum....

H5N1 bóluefnið varasamara en mRNA covid efnið

Niðurstöður klínískra rannsókna á bóluefninu gegn fuglaflensu H5N1 leiða í ljós að þeir bólusettu eru fimm sinnum líklegri að deyja en þeir sem fengu lyfleysuna. Bóluefnið er gefið í 2 sprautum með þriggja vikna millibili. Finnar hafa riðið á vaðið með...

Fjórðungur þeirra sem þáðu Covid bólusetningu sjá eftir því

Niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar vestra sýna að 33% bandarísks almennings er sammála ummælum hjartalæknisins Dr. Peter McCullough sem hann lét falla í janúar 2023 þegar hann sagði bóluefnin verða fjölda fólks að aldurtila. "The vaccine is killing...

Að gengisfella gæðahugtakið

Í ársskýrslu landlæknis fyrir síðasta ár er fjallað um hvernig hagstofan hafði milligöngu um að Embætti landlæknis fékk viðurkenningu Eurostat 2023 sem sjálfstæður framleiðandi opinberrar tölfræði um lýðheilsu og heilbrigðisþjónustu. Telur landlæknir að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband