Leita í fréttum mbl.is

Gaddaprótín SARS-CoV-2 hraðar líffræðilegri öldrun

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar liggur fyrir að hver heimsókn starfsmanna heilsugæslunnar á hjúkrunarheimili landsins með covid mRNA bóluefnin hraðar líffræðilegri öldrun þeirra vistmanna sem bóluefnið þiggja. Enn ein ástæða umframdauðsfallanna sýnist fundin.

Rannsóknin leiðir í ljós að gaddaprótínið á SARS-CoV-2 veirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum hraðar líffræðilegri öldrun (epigenetic age acceleration EAA). Niðurstöðurnar beinast að tveimur af níu einkennum öldrunar sem gaddaprótínið hefur áhrif á. Þetta eru epigenetic breytingar með metýleringu og telómera attrition. Virkni mRNA bóluefnisins byggir á fyrirmælum til frumunnar um að framleiða gaddaprótínið á yfirborði veirunnar sem hraðar líffræðilegu öldruninni.

Hröðun líffræðilegrar öldrunar af völdum gaddaprótíns SARS-CoV-2 veirunnar ásamt því gaddaprótíni sem mRNA bóluefnið gefur frumum líkamans fyrirmæli um að framleiða bætist við miður góða reynslu almennings af mRNA efninu. Það er að bóluefnið komi hvorki í veg fyrir sýkingu af völdum veirunnar né hindri smit. Niðurstöður rannsókna sýna að dánarlíkur bólusettra sem þurfa innlögn vegna öndunarfærasýkinga eru nær tvöfalt hærri en óbólusettra. Þar sem sýnt hefur verið fram á að líkur á að sýkjast af Covid vaxa með hverri bólusetningu er ljóst að mRNA efnin hraða öldrun bólusettra með margvíslegum hætti.

Kernan oldrun


Tvöföld dánartíðni Covid bólusettra

Dánartíðni Covid bólusettra sem lagðir voru á sjúkrahús með alvarlega öndunarfærasýkingu var næstum tvöfalt hærri en óbólusettra samkvæmt tveggja og hálfs árs rannsókn sem gerð var af vísindamönnum við Ohio State University. Dánartíðnin meðal sjúklinga með Covid var 37% hjá þeim óbólusettu í samanburði við 70% hjá bólusettu sjúklingunum.

Niðurstöður rannsóknarinnar gera að engu þá röksemd fyrir notkun mRNA bóluefnanna að bólusetning dragi úr sjúkdómsáhrifum Covid. Gripið var til þeirrar réttlætingar fyrir notkun mRNA efnanna þegar ljóst var orðið fljótlega eftir að bólusetningar hófust að þau kæmu ekki í veg fyrir sýkingu og væru þar að auki gagnslaus sem smitvörn. Næstum tvöföld dánartíðni Covid bólusettra sem lagðir eru á sjúkrahús með öndunarfærasýkingu á við óbólusetta geirneglir gagnsleysi efnanna.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu hækkaðan heildarstyrk IgG4 mótefna hjá þeim covid bólusettu. Talið er að endurteknar bólusetningar með mRNA Covid bóluefnum bæli ónæmiskerfið og leiði því til hærri dánartíðni af völdum óskyldra sjúkdóma og sýkinga.Hækkað hlutfall IgG4 hærri dánartíðni óskyldra sjúkdóma


Tölur um látna líta loks dagsins ljós

Íslenskar tölur um fjölda látinna hafa verið uppfærðar á vef Eurostat en hér hefur endurtekið verið vakin athygli á slakri upplýsingagjöf íslenskra hagtöluframleiðenda sem hafa verið allt að sjö vikum á eftir nágrannaþjóðum með tölurnar. Miðað við tölur látinna sem ná til 28. apríl hefur apríl liðið án umframdauðsfalla.

Súluritið sýnir hlutfall umframdauðsfalla eftir mánuðum frá miðju ári 2024 samkvæmt tölum á heimasíðu Embættis landlæknis. Við útreikninginn er miðað við reynslu áranna 2016 til 2019 og tekið tillit til mannfjöldaþróunar. Í töflunni er fjöldi látinna sem mætt hafa ótímabærum dauðdaga.Hlutfoll umfram og tafla 7 23 til 4 24


Það var þá ekki bóluefni eftir allt saman

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur fellt dóm þar sem Covid mRNA bóluefnið er EKKI talið uppfylla skilyrði sem liggja til grundvallar hefðbundinni læknisfræðilegri skilgreiningu á bóluefni. Niðurstöðuna byggja þeir á þeirri staðreynd að ekki hefur verið sýnt...

Fæðingum fækkar á fyrsta ársþriðjungi um 5,8%

Línuritið sýnir samanburð á þróun fjölda fæðinga á Íslandi frá árinu 2019 og þróun fjölda kvenna á aldrinum 15 til 44 ára yfir sama tímabil. Þar sem Hagstofa Íslands hefur ekki enn birt tölur um fæðingar á árinu 2023 er notast við tölur úr...

Gaslýsing í yfirgír

Gaslýsingin við að hylja slóð alvarlegra aukaverkana covid bóluefnanna hefur ýmsar birtingarmyndir. Meðal annars frétt í Daily Mail þar sem fjallað er um ótrúlegan vöxt krabbameins um heim allan í kjölfar faraldursins og örsökin sögð veirunnar. Til að...

Forstjóri Moderna um skaðann af DNA í framleiðsluferli mRNA bóluefna

Kanadískir sérfræðingar hafa staðfest DNA mengun í lyfjaglösum undan covid mRNA bóluefnum Pfizer og Moderna í Ástraliu en rannsóknarstofan hafði áður sannreynt tilvist DNA í bóluefnaglösum í Kanada sem voru langt yfir leyfilegum mörkum þar í landi. Í...

Íslensk framleiðsla hagtalna í skötulíki

Vefur Evrópsku hagstofunnar Eurostat var uppfærður í gær 5.6. með sundurliðun á fjölda látinna eftir vikum. Í klippunni eru tölur frá Norðurlöndum. Ekki liggur fyrir hvers vegna upplýsingagjöf Íslands er jafn ábótavant og raun ber vitni en nýjustu tölur...

Ísland í öðru sæti 47 vestrænna ríkja

Í frétt á forsíðu Telegraph var greint frá niðurstöðum rannsakenda við Vrije háskólann í Amsterdam sem birt var í BMJ Public Health. Rannsóknin náði til tölulegra gagna 47 vestrænna ríkja sem leiða í ljós liðlega 3 milljónir umframdauðsfalla frá árinu...

Meginstraumsmiðill snýr við blaðinu

Með tíðum fréttaflutningi vísindaritstjóra The Telegraph þar sem opnað er á skaðsemi mRNA bóluefnanna er ljóst að orðið hafa mikilvæg kaflaskil. Þar til nýlega hefur þessi virti fjölmiðill skipað sér í hóp meginstraumsmiðla með þögn um aukaverkanir covid...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband