4.6.2024 | 12:19
Meginstraumsmiðill snýr við blaðinu
Með tíðum fréttaflutningi vísindaritstjóra The Telegraph þar sem opnað er á skaðsemi mRNA bóluefnanna er ljóst að orðið hafa mikilvæg kaflaskil. Þar til nýlega hefur þessi virti fjölmiðill skipað sér í hóp meginstraumsmiðla með þögn um aukaverkanir covid bóluefnanna. Ljóst er að ritstjórnarstefnu blaðsins hefur verið kúvent, þögninni aflétt og birtast nú greinar um skaðsemi bóluefnanna allt að því daglega.
The Telegraph greinir frá niðurstöðum rannsakenda við Vrije háskólann í Amsterdam sem birt var í BMJ Public Health. Rannsóknin náði til tölulegra gagna 47 vestrænna ríkja sem leiða í ljós liðlega 3 milljónir umframdauðsfalla frá árinu 2020. Rannsóknin sýnir að framhald varð á umframdauðsföllum þrátt fyrir tilkomu bóluefna og annarra sóttvarnaráðstafana.
Rannsakendur telja niðurstöðurnar, sem ekkert fordæmi eiga, kalla á rannsóknir á umframdauðsföllunum og þar með þátt bóluefnanna. Vísa rannsakendur til þess að á meðan faraldrinum stóð hafi stjórnmálamenn og fjölmiðlar hamrað daglega á mikilvægi mannslífa og bólusetninga til varnar Covid-19. Telja rannsakendur að hliðstæð siðfræði eigi við að faraldrinum afstöðnum og því verði að rannsaka til hlítar aukaverkanir bóluefnanna.
Tölur Embættis landlæknis og Evrópsku hagfræðistofnunarinnar staðfesta stöðu Íslands mánuð eftir mánuð í hópi þeirra landa sem flest umframdauðsföllin hafa. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur ríkt þögn um umframdauðsföllin í íslenskum fjölmiðlum. Að tugir Íslendinga mæti ótímabærum dauðdaga í mánuði hverjum umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir hefur ekki til þessa verið talið fréttnæmt.
Ekki vekur síður athygli hvernig ærandi þögn sýnist ríkja um málið á Alþingi. Sú aðferð íslenskra stjórnvalda að stinga höfðinu í sandinn og horfast ekki í augu við skelfilegar afleiðingar bólusetninganna mun senn reynast þeim ófær þar sem erlendar athuganir munu leiða hið sanna í ljós.
2.6.2024 | 14:59
Getur verið?
Getur verið að að hátt hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi mánuð eftir mánuð hafi átt þátt í niðurstöðum kosninganna?
Getur verið að einhverjir kjósenda hafi viljað forða forsætisráðherranum fyrrverandi frá því að lenda fyrirsjáanlega í þeirri erfiðu stöðu sem forseti lýðveldisins að staðfesta lagasetningu um skipun rannsóknarnefndar til endurskoðunar eigin embættisverka á faraldursárunum?
Getur verið að einhverjir kjósenda hafi viljað forða rannsóknarnefndinni frá því að lenda í þeirri erfiðu stöðu að endurskoða embættisverk forsetans í fyrra starfi, ráðherra í ríkisstjórn hennar og æðstu yfirmanna heilbrigðismála á faraldursárunum?
Getur verið að einhverjir kjósenda hafi talið rétt að forða fyrrverandi forsætisráðherra frá því að komast í aðstöðu til að hafa áhrif á endurskoðun ráðstafana á sviði sóttvarna á faraldurstímanum?
Getur verið að einhverjum kjósendum hafi ofboðið þegar þeim var boðið upp á myndbönd með fyrrverandi sóttvarnalækni ásamt helsta ráðgjafa hans og starfsmanns eiganda lyfjaframleiðenda til stuðnings framboði fyrrverandi forsætisráðherra og áttað sig á sig á að kjörið myndi hindra rannsókn á embættisverkum hinna sömu á faraldursárunum?
Getur verið að stór hluti þjóðarinnar hafi áttað sig á skynsemisbrestinum sem ákvörðun fyrrverandi forsætisráðherra að sækjast eftir embætti forseta lýðveldisins undir þessum kringumstæðum endurspeglar?
2.6.2024 | 08:34
Tekist hefur að telja fjölda látinna á Íslandi í mars
Athygli vakti þegar Ísland reyndist eina landið í Evrópu sem ekki hafði náð að taka saman upplýsingar um fjölda látinna í mars mánuði fyrir Evrópsku hagfræðistofnunina (Eurostat) sem birtar voru 16.5. s.l. Upplýsingar um fjölda látinna í mars mánuði hafa nú verið birtar á vef Embættis landlæknis. Skelfileg þróun umframdauðsfalla heldur áfram á Íslandi og virðist ekkert lát á. Klippan af vef landlæknis sýnir að umframdauðsföllin í mars voru hærri en í janúar á þessu ári þegar þau voru með hæsta móti.
Eurostat hlutföllin um umframdauðsföllin eru hærri en landlæknis þar sem ekki er tekið tillit til þróunar mannfjöldans við útreikningana. Þegar tölur Eurostat hafa verið uppfærðar með upplýsingum um fjölda látinna í mars s.l. mun koma í ljós að Ísland heldur vafasömu toppsæti meðal Evrópuþjóða með fjölda látinna umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir miðað við reynslu áranna 2016 til 2019.
Í raun skiptir ekki hvort horft er á tölur Eurostat eða landlæknis. Ólík aðferðafræði við útreikninginn breytir í engu þeirri staðreynd að fjöldi Íslendinga mætir ótímabærum dauðdaga í mánuði hverjum.
1.6.2024 | 22:13
Stórslysi forðað
31.5.2024 | 16:59
Árviss fjölgun einhverfra tekur enda
31.5.2024 | 06:46
Geðheilsu landsmanna hrakar hratt frá 2014
27.5.2024 | 17:16
Tvöföldun sjúkradagpeninga frá 2021
26.5.2024 | 12:07
Fækkun fæðinga víða um lönd
25.5.2024 | 15:47