Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Rýrnandi tiltrú Englendinga til bóluefna

Af heilbrigðisstarfsmönnum í framlínu í Englandi þáðu fimmti hver eða 21% bólusetningu gegn Covid-19 á tímabilinu 1.9.24 til 28.2.25. Yfir sama tíma þáðu 37,5% inflúensubólusetningu og Staff dont want the jabhefur hlutfallið ekki verið lægra í 15 ár. Bólusetningarþekja heilbrigðisstarfsmanna gegn inflúensu í Englandi hefur lækkað fjögur ár í röð. Svo mjög hefur tiltrú heilbrigðisstarfsmanna á bóluefnum rýrnað að einungis 2.416 eða 12,9% af 18.750 starfsmönnum Barts Health Trust sem vinna á sex spítölum í austur London þáðu inflúensusprautuna í vetur.

Rýrnandi traust enskra til bólusetninga sést á þátttöku 12 og 13 ára stúlkna í bólusetningum gegn HPV veirunni sem hefur lækkað úr 90% fyrir Covid í 73% á síðasta ári. Hlutfall enskra drengja sem þáði bólusetningu gegn HPV hefur lækkað úr 82% í 68%.


4 sæti á heimslistanum og í efsta sæti í Evrópu

Ísland er fjórða örvunarbólusettasta þjóð heimsins samkvæmt tölum WHO (tafla) og í efsta sæti Evrópuþjóða. Að Ísland sé í hópi þjóða Evrópu með hlutfallslega flest umframdauðsföllin kemur ekki á óvart þegar horft er til niðurstaðna rannsókna sem hver af annarri sýna fjölgun dauðsfalla af völdum Covid-19 samfara fleiri bólusetningum. Þrátt fyrir að örvunarbóluefninu hafi verið haldið stíft að eldri borgurum hefur fækkun þeirra ekki dugað til að stytta biðtímann eftir hjúkrunarrýmum sem haldið hefur áfram að lengjast. Á vef stjórnarráðsins er tilkynning um að forsætisráðherrann leiði ráðherranefnd sem ætlað er að átta sig á öldrun þjóðarinnar sem virðist koma stjórnvöldum á hverjum tíma í opna skjöldu. Vonandi horfir forsætisráðherrann fremur til fjölgunar hjúkrunarrýma en fækkunar vistmanna fyrir atbeina afurða lyfjaframleiðenda til lausnar vandanum.WHO booster rank end 2023


9 vikna biðtími eftir krabbameinsmeðferð

Heilbrigðisráðherra upplýsti landsmenn um að biðtíminn eftir meðferð við krabbameini sé „orðinn mjög langur“ en hann er nú 9 vikur að meðaltali eða rúmlega tvöfalt lengri á Íslandi en ásættanlegt er talið á Norðurlöndum þar sem miðað er við að 4 vikur líði lengst frá greiningu til meðferðar. Í greininni fjöllum við Helgi Örn um sérstöðu Íslands með hækkandi dánartíðni meðan hún fer lækkandi hjá flestum Evrópuþjóðum enda faraldurinn löngu afstaðinn.Hvað veldur viðvarandi hækkaðri dánartíðni


Alzheimer – slæmar fréttir og góðar

Nöturlegt var fyrir alzheimersjúka og aðstandendur að hlýða á vitnisburð nýs heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna í gær fyrir þingnefnd þar sem hann fullyrti að spilling innan heilbrigðisstofnana vestra væri EINA ástæða þess að ekki hefði enn fundist lækning við alzheimer sjúkdómnum. Fjárveitingar hefðu á grundvelli sviksamlegrar háttsemi verið látnar einskorðast við rannsókn á einni hugsanlegri orsök sjúkdómsins á sama tíma og aðrir möguleikar hefðu verið látnir ókannaðir. Ráðherrann taldi einsýnt að lækning við alzheimer hefði þegar fundist ef eðlilega hefði verið staðið að ráðstöfun fjármuna til rannsókna á sjúkdómnum. Þrátt fyrir að það sé fullseint fyrir marga sem haldnir eru sjúkdómnum var engu að síður ánægjulegt að heyra ráðherrann lýsa þeim staðfasta ásetningi og vissu að lækning við alzheimer myndi fljótt finnast. Frásögn Science lýsir einum þætti spillingarinnar sem ráðherrann vísaði til.RFK Jr Alz þingn


Alma breytti dánarmeinaskráningum Þórólfs

Tilefni fréttatilkynningar sóttvarnalæknis 28. apríl 2022 var að leiðrétta umræðu fjölmiðla „um fjölgun andláta á fyrsta fjórðungi þessa árs miðað við undanfarin ár og látið að því liggja að COVID-19 faraldrinum sé um að kenna.“ Að baki var mars mánuður þar sem 42% fleiri landsmenn höfðu látist heldur en að meðaltali í mars á árunum 2016 til 2019 samkvæmt súluriti á heimasíðu landlæknis. Engan skal undra að titrings gætti á skrifstofum Embættis landlæknis í kjölfar allra þessara dauðsfalla og ágreiningsins um skráningu þeirra sem tveim vikum síðar lyktaði með ótímabærum starfslokum sóttvarnalæknis sem vildi ekki eiga aðild að rangri dánarmeinaskráningu. Klippan er niðurlag blaðagreinar um aðdraganda og ástæður starfsloka fyrrverandi sóttvarnalæknis byggðri á fréttatilkynningum hans frá þessum örlagaríku dögum.Útdráttur starfslok ÞG


Engu er líkara en að menntun íslensku læknanna hafi dregist aftur úr

Óbreytt dánartíðni á Íslandi á árinu 2024 á sama tíma og hún lækkar meðal nágrannaþjóðanna gefur ekki vonir um að staða landsins í samanburði þjóða hafi batnað frá 2023 en það ár var Ísland með hæst aldurstaðlað hlutfall umframdauðsfalla meðal Evrópuþjóða. Tölur Hagstofunnar um dauðsföll á fyrsta fjórðungi yfirstandandi árs benda til lítt breyttrar dánartíðni á árinu 2025. Það er skelfilegt fyrir landsmenn að Ísland sé í hópi þeirra þjóða Evrópu sem hæst hlutfall umframdauðsfalla hafa samfellt um fjögurra ára skeið án þess að raunhæf von sé um breytingu til batnaðar.Aldurstöðluð umframdánartíðni 10 Evrópuþjóða 2023 MW


Nýjum tilfellum krabbameins fjölgar um allt að 40%

Óvíða gætir skaðans af völdum Covid-19 mRNA bóluefnanna á heilsufar landsmanna með greinilegri hætti en þegar horft er á vöxt uppsafnaðs fimm ára nýgengis krabbameins. Þegar lagt er mat á fjölgunina er mikilvægt að hafa í huga að fyrstu tvö árin (2019 og 2020) í fimm ára meðaltalinu höfðu mRNA Covid bóluefnin ekki verið tekin í notkun. Súluritin sýna fjölgun nýrra tilfella í brjósti um 20,3%, blöðruhálskirtli 30,5% og fjölgun eitilfrumuæxla um 26,5%. Uppsöfnuð fjölgunin á krabbameini í nýrum beggja kynja er 39,6% og greinir dánarmeinaskrá landlæknis fyrir árið 2023 frá 33% fjölgun dauðsfalla af völdum illkynja æxla í nýra.Fimm ára uppsafnaður fjöldi 4 meina


76% fjölgun bjargráðsígræðslna á LSH

Ígræðslur bjargráðs og skiptingar, sem ætlað er að meðhöndla hraðar og lífshættulegar hjartsláttartruflanir, voru 76% fleiri 2023 og 2024 en 2019 og 2020. Gangráðsísgræðslum fjölgaði um 18% á sama tíma sem er töluvert umfram fjölgun landsmanna. Tölur úr starfsemisupplýsingum Landspítalans haldast í hendur við niðurstöður fjölda ritrýndra rannsókna um skaðleg áhrif Covid-19 bóluefnanna á hjartastarfsemina. Fjöldi ígræðslna 2023 og 2024 bendir til langvarandi skaðlegra áhrifa mRNA efnanna á starfsemi hjartans.Bjargráðs og gangráðsígræðslur


13% fækkun fæðinga á LSH veturinn 2021/2022

Fæðingum á Landspítala fækkaði um 13% frá des. 2021 til og með júní 2022 en þá fór skaðlegra áhrifa bólusetninganna á æxlunarfærin að gæta í fæðingartölum þar sem bólusetningarnar voru komnar vel af stað á vormánuðum 2021. Rauði hringurinn á súluritinu sýnir glögglega skyndilega fækkun fæðinga í desember 21 og varir ástandið um hálfs árs skeið. Að fæðingum á Landspítalanum fækki í einu vettvangi 9 mánuðum eftir upphaf Covid bólusetninganna skýrist ekki af meðvituðu fjölskylduskipulagi. Rannsóknir staðfesta skaða mRNA bóluefnanna á æxlunarfærin, t.a.m. fækkun sæðisfrumna karlmanna og minni hreyfanleika. Íslenskar konur geta vitnað til um truflandi áhrif bóluefnanna á tíðahringinn.Fæðingar á LSH með McCull


Að bera í bakkafullan læk frásagna af gagnsleysi skaðlegra bóluefna

Frumkvöðullinn Steve Kirsch telur að með einu línuriti sem sýnir hlutfall látinna af smituðum (CFR case fatality rate) sé hægt að sýna fram á gagnsemi eða öllu heldur gagnsleysi Covid-19 bólusetninganna. Virki bóluefnin hefði hlutfall látinna af smituðum átt að lækka eftir að almennar bólusetningar hófust snemma árs 2021. Ónákvæmur mælikvarði sem gefur engu að síður sterka vísbendingu. Með grein SK fylgir línurit yfir þróun hlutfalls látinna af smituðum fyrir UK, US, Evrópu, Ísrael og heiminn. Notaðar eru tölur úr gagnagrunni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Ljóst er af línuritinu að hlutfallið lækkar ekki sem staðfestir gagnsleysi bóluefnanna. Neðri myndin sýnir hliðstæðar upplýsingar fyrir Ísland. Með öllum fyrirvörum um smæð lands og stærða verður ekki annað séð en að gagnsleysi bólusetninganna við Covid staðfestist af hérlendri reynslu. Stærðfræðingurinn bendir á að ef bóluefnið hefði verið að virka hefði eitt af þrennu eða blanda þessara þátta átt að eiga sér stað sem leiða hefði átt til lækkaðs hlutfalls látinna af smituðum: 1. smitum fækkað 2. hlutfall látinna af smituðum lækkað eða 3. hvorutveggja. Þar sem eldri borgarar voru í forgangi við bólusetningarnar hefði gagnsemi bóluefnanna gegn Covid átt að vera þeir mun augljósari.

Almenningur veit nú, en ekki sumarið 2021, að bóluefnin voru gagnslítil eða gagnslaus til að koma í veg fyrir smit til og frá bólusettum einstaklingi. Til að rökstyðja notkun efnanna er gjarnan vísað til ósannaðrar eftiráskýringar þess efnis að bólusetningin dragi úr sjúkdómsáhrifum. Telja má víst að íslenskur almenningur hefði viljað búa að upplýsingum um gagnsleysi bóluefnanna sem smitvarnar vor og sumar 2021. Þúsundir hefðu afþakkað bóluefnið og hundruð Íslendinga væru enn á lífi og en fleiri með fulla heilsu.

Almennt er álitið að stóraðgerð Bandaríkjaforseta til framleiðslu bóluefna gegn Covid-19 á hans fyrra kjörtímabili hafi ekki einungis reynst gagnslaus til að fækka dauðsföllum og draga úr áhrifum Covid-19 heldur hafi aðgerðin kostað yfir hálfa milljón bandarískra ríkisborgara lífið og milljónir manna líf og heilsu á heimsvísu. Fyrir liggur að efnin voru lítt prófuð í klínískum rannsóknum og framleiðsluferlið gallað, m.a. vegna erfðaefnamengunar. Vísbendingar eru um að forsetinn hafi dregið lærdóm af mistökunum 2020 sem megi merkja af vali hans á einstaklingum í lykilstöður í heilbrigðiskerfinu vestra. Þar má helst nefna skipun Robert F Kennedy Jr í stöðu heilbrigðisráðherra sem líklegur er til að láta heilbrigði almennings njóta vafans. Nýtilkomið skilyrði um að eftirleiðis fái bóluefni ekki markaðsleyfi nema að undirgengnum tvíblindum klínískum rannsóknum með óvirkri lyfleysu gefa vonir um að dragi úr líkum á að mistökin við prófanir og framleiðslu Covid bóluefnanna endurtaki sig.CFR World Iceland


Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband