Leita í fréttum mbl.is

33% foreldra ákveðin í að hafna að hluta eða alfarið barnabóluefnum

Tvær bandarískar kannanir á áformum 174 vanfærra kvenna og 1.765 foreldra um þátttöku í ráðlögðum bólusetningum afkvæma á fyrstu 18 mánuðum æviskeiðsins sýndi svipaða niðurstöðu meðal beggja hópa þar sem 40% höfðu ákveðið að láta bólusetja börnin. 60% ætluðu að hafna, bíða eða voru óákveðin með bólusetningu. Hlutfall foreldra sem voru ákveðin í að hafna bólusetningum að hluta eða öllu leyti reyndist 33%. 48% frumbyrja voru óákveðin um bólusetningar. Niðurstöðurnar eru sláandi og endurspegla rýrnandi traust foreldra á bóluefnum eftir reynsluna af Covid bóluefnunum.Barnabólusetningar USA áform


Blekktu þeir vísvitandi eða vissu Willum og Björn Bjarna ekki betur

Breytingar á regluverki WHO taka gildi 19. september 2025 gagnvart aðildarþjóðum nema þau tilkynni WHO að þau hafni breytingum á reglugerðinni (IHR). Til þess hafa löndin svigrúm til 19. júlí n.k. Segi Ísland sig ekki frá breytingunum innan frestsins er ríkisstjórnin að taka ákvörðun um að afsala sér ákvörðunum um faraldursviðbrögð hér á landi, þar með talið bólusetningar og hugsanlega skyldu einstaklinga til bólusetninga, útgáfu rafrænna vottorða um bólusetningar, ferðafrelsi landsmanna, innilokanir, grímuskyldu barna og fullorðinna og frelsi til daglegra athafna svo fátt eitt sé upptalið. Að stjórnvöld taki ákvörðun án allrar umræðu á Alþingi um aðild Íslands að breyttum reglum stangast á við ummæli fyrrverandi heilbrigðisráðherra í ræðu í nóvember 2023. (sjá klippu)

Rifjast upp grundvallar misskilningur Björns Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra þar sem hann fjallaði um fyrirhugaðar breytingar á regluverki WHO: „Í opinberri tilkynningu á WHO CA+ er mikil áhersla lögð á fullveldi ríkja. Í frumvarpsdrögunum á að standa skýrum stöfum að ríki hafi fullveldisrétt til að ákveða sjálf og stjórna hvernig þau haga heilsugæslu sinni, þar á meðal sóttvörnum, viðbúnaði og viðbrögðum. Ríkjum er ekki skylt að grípa til neinna sérstakra aðgerða eða ákvarðana að tillögu WHO. Ráðið hefur ekki yfirþjóðlegt vald.“ Í nóvember 2023 lá þegar fyrir að Björn hafði rangt fyrir sér þegar hann fullyrti að íslensk stjórnvöld geti ákveðið sjálf og stjórnað hvernig þau haga faraldursráðstöfunum eins og sóttvörnum, viðbúnaði og viðbrögðum. Eins og staðan er orðin í dag sjá allir landsmenn í hversu djúpum misskilningi Björn Bjarnason var þegar hann fullyrti að; „sáttmálinn skuldbindur ekki íslenska ríkið nema alþingi samþykki og það samræmist stjórnarskrá Íslands.“

Geri Ísland ekki fyrirvara við breytingarnar innan tveggja sólarhringa munu breyttar reglur hafa í för með sér að Íslendingar munu ekkert hafa um faraldursviðbrögð hér á landi að segja, t.d. bólusetningar og hugsanlega skyldu, rafræn vottorð um bólusetningar, ferðafrelsi, innilokanir, grímuskyldu barna og fullorðinna og frelsi til daglegra athafna svo fátt eitt sé upptalið.Willum Þór um IHR breytingar í nóv 2023


Lífmerki í eyrnamerg greina krabbamein, sykursýki og fleiri sjúkdóma

Í vísindaritinu Nature er greint frá niðurstöðum rannsóknar þar sem með greiningu 27 líffræðilegra merkja í eyrnamerg tveggja hópa einstaklinga þar sem annar hópurinn var með krabbamein gátu rannsakendur greint krabbameinssjúka frá heilbrigðum í öllum (100%) tilvika. Lífmerkjagreiningin á eyrnamergnum, sem þegar hefur verið tekin í notkun á sjúkrahúsui í Brasilíu, er ódýr og nákvæm greining á krabbameini allt frá forstigi meinsins sem í mörgum tilvikum er forsenda þess að lækning takist. Fjársveltur Landspítalinn til krabbameinslyfjakaupa ætti að verði sér úti um greiningartækið sem notað er í Brasílíu á eyrnamerginn til að koma böndum á ört vaxandi kostnað spítalans af innkaupum krabbameinslyfja. Greinin í The Epoch Times er að baki áskriftarveggs og því er hlekkjað á rannsóknina í Nature. Niðurlag Grok (svartur grunnur) er óvenju jákvætt miðað við það sem gervigreindarforritið lætur frá sér fara um læknisfræðilega tækni í tilraunafasa.Eyrnamergur Grok & Epoch Times


Grok 4 játar sig sigrað

Áhugavert að lesa hvernig rökfastur Steve Kirsch fær Grok 4 með línuriti og tékkneska gagnagrunninum til að staðfesta að þau litlu jákvæðu áhrif sem Covid bóluefnin kunna að hafa haft á árinu 2021 séu hverfandi samanborið skaðsemina með hærri dánartíðni...

Af 123 milljónum Japana þáðu einungis 10.000 nýja mRNA efnið

Við greiningu Prófessors Murakami við vísindaháskólann í Tokyo á 21 milljón bólusetningarvottorðum Japana sést umtalsverð fjölgun dauðsfalla 90 til 120 dögum eftir mRNA Covid bólusetningu. Fleiri örvunarsprautur fækkuðu dögum að andláti sem bendir til...

Að endurheimta trúverðugleikann

Dr. Aseem Malhotra hjartalæknir, nýráðinn yfirlæknir heilsuátaks forsetans í USA og sem hefur miðlað af reynslu sinni af Covid bóluefnunum á ráðstefnu hérlendis, er í helgarviðtali í The Telegraph. Í vikunni birti hann ræðu sem hann flutti við móttöku...

Pólverjar vissu betur

Athygli vöktu rannsóknarniðurstöður þar sem lýst var áhyggjum yfir rýrari Covid bólusetningarþátttöku innflytjenda frá Póllandi í samanburði við þátttöku landsmanna. Á myndinni sést að Pólska þjóðin var varkárari gagnvart bóluefnunum en Íslendingar og...

Hvað létust margir landsmenn innan þriggja vikna frá Covid bólusetningu?

Tafla bresku hagstofunnar sýnir 36.500 dauðsföll bólusettra innan þriggja vikna frá bólusetningu á tímabilinu 1. apríl 2021 til 31. maí 2023. Þar af létust 24.900 innan þriggja vikna frá örvunarsprautu þrjú og fjögur. Upplýsingar til að útbúa hliðstæða...

Biðlisti eftir hjúkrunarrými hefur lengst um 63,7% frá 2020

Ekkert er jafn fyrirsjáanlegt í þessu lífi og öldrun þjóðarinnar og vaxandi árviss þörf eftir nýjum hjúkrunarrýmum. Frá 2020 hefur öldruðum sem bíða eftir hjúkrunarrými fjölgað um 63,7% samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Embættis landlæknis. Hvers vegna...

Að pissa í skóinn sinn

Hvernig heilbrigðisráðherra og fyrrverandi landlækni er fyrirmunað að leysa úr vandamálum sem hlaðist hafa upp á skrifborði hennar sem landlæknis á liðnum árum sjást víða merki. Ein birtingarmynd slakrar stjórnunar sést á efnistökum hennar gagnvart...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband