Leita í fréttum mbl.is

Landlæknir kúgar lækna til hlýðni með aðstoð fréttastofu Ruv

Tvo kvöldfréttatíma í röð færir Ruv landsmönnum sömu fréttina um að Embætti landlæknis hafi til skoðunar skráningu tiltekins læknis á fjórum dauðsföllum í dánarmeinaskrá síðasta árs af völdum Covid mRNA bóluefnanna. Dauðsföllin séu þau fyrstu frá upphafi Covid af völdum bóluefnanna samkvæmt dánarmeinaskránni. Af viðmælanda fréttamannsins, Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni, má ráða að ákvarðanir læknisins teljist ótrúverðugar þar sem bóluefnin hafi reynst örugg og alvarlegar aukaverkanir afar sjaldgæfar og því hafi verið kallað eftir gögnum frá lækninum til yfirferðar af óháðum sérfræðingum.

Hvers vegna er fréttastofu ríkisútvarpsins beitt kvöld eftir kvöld með þessum hætti? Getur hugsast að fréttastofan sé að láta nota sig til að reyna að telja landsmönnum trú um að dauðsföll af völdum bóluefnanna hafi engin verið? Þar er á brattan að sækja því Lyfjastofnun bárust 36 tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar á 13 mánaða tímabilinu janúar 2021 til janúar 2022.

Líklegri skýring á endurteknum fréttaflutningi Ruv af störfum sama læknisins við skráningu í dánarmeinaskrá er að með fréttaflutningnum er verið að senda kollegum læknisins viðvörun og skýr skilaboð. Ef þið skráið dauðsföll í dánarmeinaskránna af völdum bóluefnanna hættið þið starfsframa og fjárhagslegri afkomu. En hvers vegna er Embætti landlæknis að hóta læknum opinberum fréttaflutningi af skráningu þeirra í dánarmeinaskrá nákvæmlega núna? Skýringin á því er að fyrir örfáum vikum hóf landlæknir að auglýsa örvunarbólusetningu haustsins fyrir eldri borgara og einstaklinga í áhættuhópum með Covid mRNA bóluefninu. Afleiðingarnar urðu þær sömu og haustið 2023 þegar gæta fór dauðsfalla í kjölfar bólusetninga. Þar sem fordæmið var komið um meðferð dauðsfallanna í dánarmeinaskrá hafa læknar nú talið óhætt að skrá dauðsföllin af völdum bóluefnanna með réttum hætti í skránna án þess að kalla yfir sig reiði landlæknis. Danarm og Lyfjastofnun


Andleg endurhæfing í stað læknisfræðilegrar meðferðar

Vonandi fyrir skaðaða af völdum mRNA Covid efnanna eru niðurstöður kanadískrar rannsóknar sem segir lyfjameðferð, fæðubótaefni eða súrefnismeðferð gagnast lítt þeim sköðuðu marklausar með öllu. Að andleg og líkamleg endurhæfing sé líklegri til að draga úr einkennum. Landlæknirinn í Queensland í Ástralíu gengur svo langt að draga í efa tilvist skaðaeinkenna af völdum bóluefnanna og telur að einkennin sem menn kvarta undan séu svipuð þeim sem oft fylgja inflúensu eða öðrum veirutengdum krankleika. Alma Möller, senn ráðherra heilbrigðismála, getur tæpast fundið þóknanlegri og hæfari eftirmann en kollega sinn í Ástralíu til að taka við embætti landlæknis takist henni að lokka hann til Íslands.

Fréttin um rannsóknina birtist í The Telegraph og er að baki greiðsluveggs. Þeim sem ná að opna fréttina er bent á að blaðamaðurinn notar orðin „long covid“ til að lýsa bóluefnaskaðanum sem er viðurkennda orðalagið innan læknisfræðinnar til að lýsa sjúkdómseinkennum sem í langflestum tilvikum verða rakin til skaðlegra aukaverkana af völdum Covid mRNA bóluefnanna. Niðurstöður Kanadísku rannsóknarinnar um andlegu endurhæfinguna eru mikill stuðningur læknum í daglegum störfum sem ella kynnu að freistast til að nota nóbelsverðlaunað lyf til hjálpar sjúklingum sínum. Landlæknir telur engrar slíkrar meðferðar þörf enda segir hún aukaverkanir af völdum mRNA efnanna „afar sjaldgæfar“.Telegraph long covid


Að hylma ekki yfir með landlækni

Ruv upplýsti landsmenn í kvöldfréttum að Embætti landlæknis væri með til athugunar skráningu tiltekins læknis á fjórum dauðsföllum í dánarmeinaskrá ársins 2023 sem væru þau af völdum Covid-19 mRNA bóluefnanna. Í fréttinni kom fram að dauðsföllin fjögur væru þau fyrstu af völdum bóluefnanna sem skráð væru í dánarmeinaskrá enda andlát sem rekja mætti til aukaverkana af þeirra völdum afar sjaldgæf. Skilaboð landlæknis til lækna með því að taka þennan tiltekna lækni og úrskurði hans um dánarorsakir af völdum bóluefnanna til athugunar eru skýr og verða ekki misskilin af læknum um land allt. Þeim sem efast um þöggun landlæknis á skaðlegum afleiðingum bóluefnanna velkjast varla í vafa eftir að hafa skoðað meðfylgjandi klippu sem sýnir 36 tilkynningar til Lyfjastofnunar um andlát sem talin eru af völdum bóluefnanna á fyrstu 13 mánuðum bólusetninganna og bera saman við efri klippuna af dánarmeinaskránni sem sýnir hvernig þeirra er í engu getið í dánarmeinaskrá landlæknis á árunum 2021 og 2022. Þeim sem fylgst hafa með tölum um ótímabær andlát á liðnum árum á Íslandi er hins vegar fullljóst að dauðsföllin sem rakin verða til bóluefnanna hér á landi hlaupa á hundruðum. Það er augljóst þegar tölur um umframdauðsföll eru skoðaðar á heimasíðu Embættis landlæknis og ekki síður þegar tölur Evrópsku hagstofunnar fyrir Ísland eru skoðaðar.

Danarm og Lyfjastofnun


mbl.is Fjögur andlát til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landlæknir og þöggunin um dauðsföllin

Ruv upplýsti landsmenn í kvöldfréttum að Embætti landlæknis væri með til athugunar skráningu tiltekins læknis á fjórum dauðsföllum í dánarmeinaskrá ársins 2023 sem væru þau af völdum Covid-19 mRNA bóluefnanna. Í fréttinni kom fram að dauðsföllin fjögur...

Ameríkanar hafa misst trú á yfirvöldum sóttvarna

Samkvæmt skýrslu CDC (Sóttvarnastofnunar USA) um bólusetningar gegn inflúensu, Covid og RSV höfðu einungis 17,9% Bandaríkjamanna 18 ára og eldri þegið örvunarbólusetningu gegn Covid-19 9. nóv. s.l. Meirihluti Ameríkana afþakkar einnig inflúensubóluefnið...

Er þetta virkilega að vera fáránlega fær?

Senn munu koma fram gögn vestra sem varpa munu birtu á umdeildar ákvarðanatökur stjórnenda á tímum Covid-19. Birting gagnanna mun leiða til rannsókna á athöfnum stjórnenda heilbrigðiskerfa landa, þar með talið á Íslandi, þar sem ekki verður lengur komist...

Hvaða fjölmiðill tekur auglýsingaskellinn?

Leit að meginstraums fjölmiðli til að birta rafræn gögn (hljóðupptökur, tölvupósta, minnisblöð og gögn) sem CDC (Sóttvarnastofnun USA) hefur haldið frá almenningi og leiða sterkar líkur að orsakasambandi MMR barnabóluefnanna og einhverfu fer nú fram....

Óbólusett í skaðatölfræðinni í hálfan mánuð eftir bólusetningu

Niðurstöður skoðunar á 325 krufningum tengdum bólusetningu gegn Covid-19 leiðir í ljós að 74% dauðsfallanna, eða 240, voru talin af völdum bóluefnanna. Meðaltími andláta frá bólusetningu var 14,3 dagar og flest dauðsföllin áttu sér stað innan viku frá...

Ráðgátan um faraldur einhverfu er við það að upplýsast

Fullyrðingin um að MMR bóluefnin eigi ekki þátt í mikilli fjölgun barna sem greinst hafa með einhverfu á liðnum áratugum, svo líkist faraldri samkvæmt Ráðgjafar- og greiningarstöð, er við það að afsannast. Ljóst er að nýir húsbændur eru að taka við...

Trúverðugleiki landlæknis

Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu er landlæknir ábyrgðarmaður þeirra skráa sem hann skipuleggur og þeirra á meðal er dánarmeinaskrá. Tölurnar í töflunni eru úr dánarmeinaskrá landlæknis 2023 og undir henni er mynd af vef Lyfjastofnunar. Í...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband