16.11.2024 | 01:16
Stjórnmálaleiðtogum settir afarkostir
Til stórtíðinda dró í aðdraganda alþingiskosninga þegar formaður Samfylkingarinnar gerði því næst að skilyrði fyrir aðild flokksins að ríkisstjórn að samstarfsflokkarnir féllust á að heilbrigðisráðuneytið yrði Samfylkingarinnar og í stól heilbrigðisráðherra myndi setjast hinn fáránlega færi landlæknir, Alma Möller. Allan daginn er hún heilbrigðisráðherraefni Samfylkingarinnar, sagði Kristrún í Grjótkastinu hjá Birni Inga Hrafnssyni fjölmiðlamanni. Ljóst er að formaður Samfylkingarinnar hefur ekki kynnt sér með hlutlægum hætti skaðsemi Covid mRNA bóluefnanna og umdeildar ákvarðanir landlæknis sem meðal annars leiddu til starfsloka fyrrverandi sóttvarnalæknis. Vandvirkni var ekki höfð í fyrirrúmi við val á landlækni í oddvitasæti flokksins í Suðvesturkjördæmi. Þessum óvönduðu vinnubrögðum við val á lista Samfylkingarinnar ætlar formaðurinn að þröngva upp á formenn hinna flokkanna. Annað hvort samþykkið þið Ölmu sem heilbrigðisráðherra eða þið eruð útilokaðir frá ríkisstjórnarsamstarfi. Alma kemur ekki sem heilbrigðisráðherra til með að svara fyrir eða skoða eigin verk. Það sjá allir. Sýnishorn spurninga sem aldrei verður svarað á Íslandi:
· Hvers vegna heldur Alma Möller landlæknir áfram að bjóða bóluefnin þegar fyrir liggur samkvæmt henni sjálfri að þau hafa ekki reynst mjög gagnleg til að hindra smit til eða frá bólusettum?
· Hvers vegna heldur landlæknir áfram að bjóða bólusetningar þegar fyrir liggja sterkar vísbendingar um skaðsemi bóluefnanna sem sjá má af reynslu Íslendinga með mikilli fjölgun krabbameinstilvika auk fleiri sjúkdóma í kjölfar bólusetninganna ásamt fjölgun dauðsfalla umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir miðað við reynslu?
· Hvers vegna heldur landlæknir áfram að bólusetja með mRNA efni sem reynslan og rannsóknir sýna að eru þeim eiginleikum búin að þeim bólusetta verður hættara með hverri sprautu að veikjast af sjúkdómnum sem bóluefninu er ætlað að vernda gegn?
· Af hverju heldur landlæknir áfram að bjóða landsmönnum mRNA bóluefni Pfizer en fimm ríki Bandaríkjanna hafa höfðað mál á hendur lyfjaframleiðandanum fyrir ýmsar sakir tengda efninu og þar á meðal fyrir að hafa blekkt almenning um öryggi bóluefnisins og gagnsemi þess sem smitvarnar?
· Hvers vegna beitir landlæknir sér ekki fyrir tímabundinni stöðvun bólusetninga þar til gengið hefur verið úr skugga um að ávinningurinn af notkun efnanna sé talinn af stærðargráðu sem réttlæti skaðann sem landsmenn hafa orðið vitni að?
Hvað býr að baki kappi formanns Samfylkingarinnar við að koma landlækni í embætti heilbrigðisráðherra? Ætla formenn flokkanna að sætta sig við að verða stillt upp við vegg? Annað hvort samþykkið þið landlækni sem næsta heilbrigðisráðherra sem kemur til með að fara með lykilhlutverk við að endurskoða sóttvarnir Íslands í Covid eða Samfylkingin útilokar ykkur frá ríkisstjórn. Kristrún, formaður Samfylkingarinnar, á þakkir skyldar fyrir þessa uppstillingu á uppgjöri covid áranna. Hún hefur auðveldað landsmönnum valið í næstu alþingiskosningum. Nú munu landsmenn vita fyrir kosningar hvort einstakir formenn telji ákvarðanir landlæknis á covið árunum byggja á svo mikilli fáránlegri færni að þær sé óþarft að skoða en þannig mun málum verða fyrir komið taki Alma sæti heilbrigðisráðherra.
Alma heilbrigðisráðherraefni Samfylkingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2024 | 09:58
33 dánartilkynningar
Í þremur mánuðum á árinu 2024 hefur hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi farið umfram 10%. Það var í janúar, mars og ágúst þegar það var 12,3% miðað við meðaltal áranna 2016 til 2019 samkvæmt heimasíðu Embættis landlæknis. Á fyrri helmingi ársins létust 4,9% fleiri Íslendingar miðað við sama tímabil í fyrra en þeim fjölgaði einungis um 0,5% á tímabilinu. Því miður virðist ekkert lát á ótímabærum dauðsföllum landsmanna. Þar sem einungis eitt dauðsfall í ágúst var talið af völdum SARS-CoV-2 veirunnar verða umframdauðsföllin ekki skýrð sem væru þau af völdum Covid. Umframdauðsföllin eru að verða viðvarandi staðreynd sem ekkert lát er á og því er ekki að undra að eldri borgarar og einstaklingar í áhættuhópum hafi að stórum hluta afþakkað örvunarbólusetningu gegn Covid í fyrravetur. Frásagnir af bóluefnaskaða og dánartilkynningar blaðs allra landsmanna fara ekki fram hjá landsmönnum en í Morgunblaðinu í gær voru 33 tilkynningar um andlát. Svo margar dánartilkynningar á einum degi eru ekki algengar, sem betur fer, en boða ekki gott um framvinduna í nóvember. Hjúkrunarheimilin hafa fengið heilbrigðisstarfsmenn í heimsóknir að undanförnu með Covid mRNA sprautuna sem kann að skýra fjölda dánartilkynninga.
14.11.2024 | 13:08
Kanntu annan Ruv
Af einhverjum óútskýrðum ástæðum keppist Ruv við að telja landsmönnum trú um að Íslendingar hafi sloppið hvað best þjóða frá Covid. Þar sem Ríkisútvarpinu er ætlað að gæta hlutleysis í fréttaflutningi, og þá ekki síst í aðdraganda þingkosninga, er óhugsandi að fréttaflutningur af frábærum árangri Íslendinga við sóttvarnir tengist framboði landlæknis til Alþingis í fyrsta sæti Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. Súluritið sýnir að fréttaflutningur Ruv er ekki einungis hlutdrægur og ætlað að auðvelda væntanlega skipan landlæknis sem heilbrigðisráðherra næstu ríkisstjórnar þegar tölur Evrópsku hagfræðistofnunarinnar (Eurostat) um hlutfall umframdauðsfalla á Íslandi er borið saman við hlutfall ESB ríkjanna.
13.11.2024 | 17:15
Falskt öryggi vinnubrögðin kunnugleg
12.11.2024 | 13:32
Ósannindi á færibandi
11.11.2024 | 06:15
Covid var hernaðaraðgerð í boði NATO
5.11.2024 | 13:04
Starfsmenn neyðarmóttöku og hjúkrunarheimila afþakka mRNA bóluefnið
4.11.2024 | 13:28
Samdráttur í bólusetningum smábarna
3.11.2024 | 09:24
Ofurkrabbamein
2.11.2024 | 08:30