Færsluflokkur: Bloggar
22.3.2024 | 10:56
Þegar FDA varar við bóluefni er vissara að leggja við hlustirnar
Eitthvað mikið hefur farið úrskeiðis þegar FDA (lyfjaeftirlitsaðilinn í USA sem ákveður hvort bóluefni fær markaðsleyfi) telur ástæðu til að greina frá rannsókn eigin sérfræðinga sem sýnir fram á aukna hættu á heilablóðfalli í kjölfar samhliða bólusetningu gegn covid og inflúensu.
Að bjóða upp á sprauturnar á sama tíma var einmitt sá háttur sem viðhafður var í Laugardalshöllinni haustið 2022. Í október s.l. var bæði covid efninu og inflúensuefninu haldið að eldri borgurum með hliðstæðum hætti og áður. Sprautað var samtímis með báðum efnum. Aukin hætta á heilablóðfalli fannst einnig hjá þeim sem þáðu inflúensusprautuna en ekki covid mRNA sprautuna.
Klippan er úr niðurstöðum rannsóknarinnar og hvetur til þess að kostir þess að þiggja bólusetningu gegn inflúensu séu vegnir á móti aukinni hættu á heilablóðfalli. Að þessi setning hafi sloppið í gegn um nálarauga lyfjaeftirlitsaðilans vestra, sem allir vita að er í vasa lyfjaframleiðenda, er með miklum ólíkindum og sterkara merki um hættu af notkun bóluefnis munu seint sjást.
22.3.2024 | 00:56
Umframdauðsföllin og siðareglur lækna
Því miður reyndist ég sannspár um dauðsföllin í janúar sem reiknuðust 26,8% af Eurostat og voru þau langhæstu í Evrópu. Landlækni reiknaðist til að umframdauðsföllin væru 11,6% og ekki hærri en fyrir ári síðan í janúar 2023. Færslan á Twitter frá 11. janúar fylgir að neðan:
Að 31 dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu á einum og sama deginum (u.þ.b. 205 látast í meðalmánuði) er vísbending um að Covid mRNA bólusetningar landlæknisembættisins sem hófust um miðjan október verði mörgum landanum að aldurtila og að janúar 2024 bætist í hóp þeirra mánaða sem hafa hvað flest umframdauðsföllin. En hafa ber í huga að dauðsföllin af völdum mRNA efnanna eru einungis toppurinn á ísjakanum. Undir yfirborðinu er bóluefnaskaðinn sem hefur birtingarmyndir eins og bólgur í hjartavöðva, vaxandi nýgengi krabbameins auk þess að í vaxandi mæli verður þess vart að krabbamein tekur sig upp á nýjan leik.
Klippan er úr formála siðareglna lækna frá árinu 2021. Eru læknar að sýna faglega ábyrgð gagnvart skjólstæðingum, samfélagi og samstarfsfólki með því að þegja allir sem einn þunnu hljóði um skaðann á heilsu skjólstæðinga af völdum mRNA efnanna? Að læknarnir taki ekki höndum saman um að stöðva mRNA bólusetningarnar vitandi af gagnsleysi efnanna sem smitvarnar og þekkjandi rannsóknir sem sýna að líkur þeirra bólusettu á að veikjast á nýjan leik af Covid aukast með hverri sprautu. Læknarnir verða að gera sér grein fyrir að með áframhaldandi þöggun um skaðsemi mRNA bóluefnanna verður stéttin senn rúin trausti landsmanna.
21.3.2024 | 08:23
Tvíbura vöggudauði
Fjórtán vikna (3,5 mánaða) tvíburastúlkur fundust látnar í vöggu tveimur dögum eftir að hafa þegið barnasprautur gegn mænusótt, barnaveiki, stífkrampa og kíkhósta auk inflúensu B (Hib). Tvíburarnir mældust með hita á fyrsta degi og var gefið paracetamol.
20.3.2024 | 12:15
Þegar Kári og Þórólfur fóru bónleiðir til búðar
Áhugavert er að rifja upp atganginn hjá Kára Stefánssyni og Þórólfi Guðnasyni í desember 2020 við að betla bóluefni Íslandi til handa af Pfizer. Það vafðist ekki fyrir þeim að bjóða landsmenn fram til hjarðónæmisrannsóknar. Þeir vissu að bóluefnið sem nota átti var nýrrar gerðar, lítt sem ekkert prófað og óreynt. Þessi ásetningur Þórólfs gengur þvert á meginboðskap greinar sem hann ritaði í Læknablaðið 2018 en þar sagði hann:
Fá lyf undirgangast eins viðamiklar og strangar rannsóknir hvað öryggi og árangur varðar og bóluefni áður en þau eru tekin í almenna notkun. Áður en bóluefni eru sett á markað eru þau rannsökuð hjá mörg þúsund einstaklingum til að kanna árangur þeirra og öryggi. Þessar rannsóknir geta hins vegar misst af mjög sjaldgæfum aukaverkunum og því er einnig fylgst náið með hugsanlegum aukaverkunum bóluefna eftir að þau hafa verið tekin í almenna notkun. Með þessu móti er hægt að finna mjög sjaldæfar aukaverkanir og endurmeta notkun bóluefnanna.
Ástæða þess að Pfizer þáði ekki boðið um að nota Íslendinga sem tilraunadýr með mRNA efnið var að sögn Kára Stefánssonar að ekki greindust nægilega mörg covid smit á Íslandi. Svo vel hefði sóttvarnalækni tekist upp við smitvarnir.
Þrátt fyrir að Pfizer teldi Ísland ekki áhugavert til hjarðónæmisrannsókna vegna fárra covid smita vafðist ekki fyrir Kára og Þórólfi að boða landsmenn til alsherjar bólusetninga dag eftir dag í Laugardalshöllinni vor og sumar 2021. Nú vitum við að efnið sem dælt var í upphandleggi landsmanna var gagnslítið sem smitvörn og skaðlegt í ofanálag.
Liðin eru þrjú ár og í valnum liggja á sjöunda hundrað Íslendingar sem hlotið hafa ótimabæran dauðdaga fyrir tilverknað bóluefnanna. Þúsundir Íslendinga eiga við sjúkdóma að etja af völdum mRNA efnanna. Þrátt fyrir að flestum sé orðið ljóst gagnsleysið og skaðinn sem efnin geta valdið er haldið áfram að nota mRNA efnin.
Óskiljanlegt er að bólusetningar hafi hafist að nýju í október s.l. eftir hlé frá í apríl þvert á niðurstöður fjölda rannsókna sem staðfesta gagnsleysi efnanna sem smitvarnar og skaðsemi þeirra á heilsu landsmanna. Dauðsföllin sem fylgdu bólusetningunum í október komu engum á óvart nema ef til vill stjórnendum embættis landlæknis. Vegna mikils fjölda dauðsfalla í beinu framhaldi bólusetninganna greip sóttvarnalæknir til þess ráðs að breyta tölum um covid greinda og tvöfalda fjölda þeirra afturvirkt til viku 35. Þetta má sjá í fréttabréfi sóttvarnalæknis sem birt var 7. desember s.l. vegna viku 48.
Hvað getur valdið því að trúnaðarmenn landsmanna í embættum landlæknis og sóttvarnalæknis haga ekki störfum sínum í þágu heilsu almennings í landinu? Hvers vegna er ekki farið að bestu framkvæmd um notkun nýrra bóluefna eins og lýst er í grein Þórólfs Guðnasonar frv. sóttvarnalæknis í Læknablaðinu 2018?
Þessar rannsóknir geta hins vegar misst af mjög sjaldgæfum aukaverkunum og því er einnig fylgst náið með hugsanlegum aukaverkunum bóluefna eftir að þau hafa verið tekin í almenna notkun. Með þessu móti er hægt að finna mjög sjaldæfar aukaverkanir og endurmeta notkun bóluefnanna.
20.3.2024 | 07:45
Af talnameðferð embættis landlæknis 3
Þvert á betri vitund og heilbrigða skynsemi ákvað embætti landlæknis að hefja covid mRNA örvunarbólusetningar að nýju um miðjan október s.l. eftir að hafa gert hlé á bólusetningum frá lokum apríl. Stjórnendum hlaut að vera kunnugt um fjölda niðurstaðna ritrýndra rannsókna sem sýna með óyggjandi hætti fram á skaðsemi bóluefnanna. Mikill fjöldi umframdauðsfalla á Íslandi er staðreynd hvernig sem er reiknað og Ísland mælist með þeim löndum í Evrópu mánuð eftir mánuð sem flest umframdauðsföllin hafa.
Þrátt fyrir þessa vitneskju taka þær ákvörðun um að hefja bólusetningar að nýju um miðjan október. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa þegar dauðsföllum fjölgaði mikið í kjölfarið.
En dauðsföllin eru einungis toppurinn á ísjakanum. Skaðsemi bóluefnanna fer ekki fram hjá starfsemi bráðadeilda Landspítala. Dvalardögum á bráðamóttöku fjölgaði um 8% í nóvember frá fyrra mánuði. Ekkert lát var á innlögnum á bráðamóttökuna í byrjun desember. Með þessu miklu veikindi og fjölgun dauðsfalla gátu stjórnendurnir ekki lengur komist hjá að horfast í augu við skaðann sem ákvörðunin um að hefja bólusetningar að nýju í október hafði valdið.
Sterkar vísbendingar eru um að stjórnendur embættis landlæknis hafi fært dánarorsakir af völdum mRNA bóluefnanna yfir á covid veiruna á árinu 2022. Til þess að hægt yrði með trúverðugum hætti að endurtaka blekkinguna vegna dauðsfallanna í kjölfar bólusetninganna sem hófust í október þurfti að greina fleiri covid smit í haust og vetur. Því taka þær ákvörðun um að fjölga vikulegum covid greindum um 100% afturvirkt til og með viku 35 til að búa í haginn með hagræðingu dánarorsaka af bóluefni yfir á veiru þannig að ekki félli skuggi á mRNA bóluefnin.
19.3.2024 | 16:57
Falsanir talna virðist venja en ekki undantekning
Fleiri dæmi eru borðleggjandi um falsanir embættis landlæknis sem gerðar eru í því skyni að hylja eyðileggingarslóð covid mRNA bóluefnanna. Sýnt hefur verið fram á falsanir embættisins á tölum um fjölda einstaklinga sem greindust með Covid-19 frá og með viku 35 á síðasta ári. Tölurnar er birtar vikulega í fréttabréfi um öndunarfærasýkingar. Fréttabréfið fyrir viku 48, sem gefið var út 7. desember tvöfaldaði fjölda þeirra einstaklinga sem greinst höfðu með Covid-19 frá viku 35 í fyrra. Til fölsunar var gripið þegar þeim var ljós mikil fjölgun dauðsfalla í kjölfar mRNA örvunarbólusetninganna sem illu heilli hófust að nýju um miðjan október.
Vorið 2022 var mikið um umframdauðsföll í kjölfar örvunarbólusetningarátaks vetrarins. Á þessum tíma var að renna upp fyrir stjórnendum embættisins að bóluefnin voru orsakavaldurinn. Til að leyna almenning staðreyndunum var ákveðið að segja umframdauðsföllin af völdum sjúkdómsins en ekki mRNA efnanna. Reyndar sætti þáverandi sóttvarnalæknir sig ekki við að verða þátttakandi í blekkingunni sem í uppsiglingu var og lét af störfum um vorið ári fyrir aldur fram.
Blekkingu embættis landlæknis með dánarorsakir af völdum bóluefnanna á árinu 2022 má skýra í löngu máli og styðja ýmsum tölum. En súluritin að neðan duga í þessu bloggi. Á súluritinu sýna bláu súlurnar dauðsföll á Landsspítalanum fram til sept. 2022 þegar birtingu talna var hætt og rauðu súlurnar dauðsföll af völdum covid yfir sömu mánuði samkvæmt landlækni. Neðri klippan er af síðu landlæknis um látna af völdum covid á árinu 2022.
Ef einhver trúir því að í mars 2022 hafi 75 (8611=75) látist utan Landsspítalans af völdum covid er hann vinsamlegast beðinn um að rétta upp hönd. Viðkomandi þarf ekki að fyrirverða sig fyrir að vera svo auðtrúa. Hann er hópi með Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra.
19.3.2024 | 08:08
Tafarlaus stöðvun og þó fyrr hefði verið
Framsögu Dr. Jessicu Rose PhD fyrir nefnd öldungardeildar bandaríska þingsins um Covid-19 fylgdu nokkrar glærur:
Klippan sýnir að frá því að VAERS gagnagrunnurinn var tekinn í notkun 1990 hafa að meðaltali 39.000 skaðatilkynningar borist árlega í gagnagrunninn. En á árinu 2021 fjölgaði skaðatilkynningum í gagnagrunninn úr 49.640 á árinu 2020 í 753.047. Megnið af þeim vegna Covid.
Eftirfarandi klippa sýnir fjölda skaðatilkynninga í VAERS gagnagrunninn fyrir hverja eina milljón bóluefnaskammta. Vinstra megin skaðatilkynningar vegna inflúensu og covid. Hægra megin sýna súlurnar tilkynningar um dauðsföll pr./eina milljón sprautuskammta í kjölfar bólusetninga á sömu árum.
Klippan að neðan sýnir orsakasamband bólusetninga og skaðatilkynninga um hjartavöðvabólgu. Grafið byggir á tölum úr gagnagrunni World in Data.
Síðasta klippan sýnir skaðatilkynningar um hjartavöðvabólgu af völdum Covid bóluefnanna eftir aldri bóluefnaþegans.
Dr. Jessica Rose telur einsýnt að öll skilyrði séu uppfyllt til tafarlausrar stöðvunar á notkun Covid mRNA bóluefnanna.
18.3.2024 | 05:47
Sóttvarnalæknir falsar tölur um Covid-19
Öndunarfærasýkingar nefnist rafrænt fréttabréf sóttvarnalæknis sem gefið er út yfir vetrarmánuðina. Þar er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra á Íslandi sem og stöðu öndunarfærasýkinga í Evrópu. Ábyrðarmaður fréttabréfsins er Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir.
Eftirfarandi er úr fréttabréfinu fyrir vikur 47 og 48 2023. Fyrsta setningin í bréfinu fyrir viku 48 er feitletruð til að vekja athygli lesandans á ásetningnum sem býr að baki fölsuninni: (klippur að neðan)
Vika 47:
Í viku 47 greindust 55 einstaklingar með COVID-19 með PCR prófi, færri en í viku 46. Hlutfall jákvæðra prófa var 21% (mynd 1)
Vika 48:
Fjöldi COVID-19 greininga í haust hefur verið nokkuð stöðugur og heilt yfir eru ekki merki um aukningu. Í viku 48 greindust 97 einstaklingar með COVID-!9, annað hvort staðfest með PCR-prófi eða með klínískri greiningu. Hlutfall jákvæðra prófa af heildarfjölda greindra sýna hefur einnig verið nokkuð stöðugt frá upphafi hausts og sveiflast í kringum 20% (mynd 1).
Fréttabréfið um öndunarfærasýkingar fyrir viku 48, sem gefið var út 7. desember s.l., markar kaflaskil þar sem stjórnendur embættisins hafa þá tekið ákvörðun um að gefa opinberlega rangar upplýsingar og tvöfalda fjölda þeirra einstaklinga sem greinst hafa með Covid-19 frá og með viku 35.
Ávörðun um birtingu rangra talna endurspeglar örvæntingu stjórnenda þar sem ljóst er að gerningur af þessum toga hlýtur að leiða til æru- og starfsmissis. TIl örþrifaráðsins er gripið þegar þeim er ljós mikil fjölgun dauðsfalla í kjölfar mRNA örvunarbólusetninganna sem illu heilli hófust að nýju um miðjan október.
Á árinu 2022 var gripið til þess ráðs að segja umframdauðsföllin af völdum veirunnar en ekki mRNA efnanna. Til þess að blekkingin gæti heppnast að nýju var nauðsynlegt að fjölga einstaklingum með sjúkdóminn.
Heilbrigðisráðherra, þingmenn og umboðsmaður Alþingis hljóta að taka ranga upplýsingagjöf embættis landlæknis til rannsóknar. Staða embættisins sem framleiðanda hagtalna hlýtur að þurfa að endurmeta. Trúverðugleiki íslenskra hagtalna sem byggir á samstarfssamningi embættis landlæknis og Hagstofu Íslands frá í mars 2023 verður vera án nokkurs vafa.
17.3.2024 | 12:44
Átakanlega illa upplýstur ráðherra
Hverfandi umræða á sér stað á Íslandi um fyrirhugaðar breytingar á reglum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og nýja faraldurssáttmálann. Forstjóri stofnunarinnar endurtekur við hvert tækifærið á öðru ranga fullyrðingu um að breytingarnar muni ekki fela í sér framsal ákvarðana um faraldursviðbrögð frá aðildarlöndum til stofnunarinnar. Af eftirfarandi svari Willum Þórs Þórssonar við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar á Alþingi 27.11.23 sýnist forstjóranum hafa tekist að blekkja íslensk heilbrigðisyfirvöld:
Ég get hins vegar fullyrt varðandi það sem hefur kannski verið í umræðunni um að stjórn heilbrigðismála sé með einhverju marki með þessari reglugerð komin yfir til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, á þeim ákvörðunum sem við tökum hér í íslensku heilbrigðiskerfi, að það er það ekki þannig. Það er ekki þannig. Stefnumótunin á sér ekki stað þar. Stefnumótunin á sér stað hér og við fylgjum henni og við fylgjum íslenskri stjórnarskrá og við fylgjum íslenskum lögum og við tökum ákvarðanir hér á Alþingi um það sem við viljum sjá í íslensku heilbrigðiskerfi. Það er staðfest og ég hef spurt eftir því.
Eins og hlekkjuð frétt og umfjöllun á heimasíðu Brownstone Institute bera með sér horfir illa fyrir þjóðinni vegna yfirgripsmikillar vanþekkingar ráðherra og hans helstu sérfræðinga í málaflokknum.