Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hjartatengd útköll sjúkrabíla

Afgerandi vísbending um skaðsemi mRNA efnanna sést á meðfylgjandi súluriti sem sýnir hjartatengd útköll sjúkrabíla vegna 30 ára og yngri á árunum 2017 til og með mars 2022 í West Midland UK. Hvernig rauðar súlur ársins 2021 taka stökk á vormánuðum og haldast háar út árið og fyrstu 3 mánuði ársins 2022 tekur af allan vafa um skaðsemi mRNA efnanna en bólusetningar hófust vorið 2021.Utkoll sjukrabila Midland hjartatengd tilvik


Ofgerum ekki ónæmiskerfi barnanna

Mikil fjölgun barna með króníska sjúkdóma á liðnum árum veldur áhyggjum. Reynslan af covid efnunum gefur fullt tilefni til að ganga úr skugga um hvort barnabóluefnin eigi hlut að máli. Vitað er að ekkert barnabóluefnanna hefur verið reynt í hefðbundinni langtíma klínískri lyfjarannsókn.

Þegar horft er á klippuna af barnaprógrammi CDC fyrir yfirstandandi ár er erfitt að verjast þeirri hugsun að verið sé að ofgera ónæmiskerfi barnanna og heilsufarslegir hagsmunir þeirra hafi verið látnir víkja. Íslenska barnaprógrammið er með færri bólusetningum án þess að komið hafi niður á heilsufari barnanna. Heilbrigði barna Amishfólksins er með ágætum þrátt fyrir að börnin þeirra séu bólusett sjaldnar en víðast hvar. 

Tidni einhverfu USA spa

CDC barnaboluefnaprogram 2024


Af heilsubresti Kate Middleton

Eftir því sem lengra líður frá kviðarholsaðgerð Prinsessunnar af Wales fjölgar þeim sem telja að veikindin séu alvarlegri en frásagnir konungshallarinnar gefa til kynna. Dr. William Makis læknir og sérfræðingur á sviði ónæmis, krabbameins og röntgenlækninga veltir stöðunni fyrir sér í eftirfarandi klippum:KM 1

KM 2

KM 3

KM 4


Einu gildir hvernig reiknað er – ótímabæru dauðsföllin eru staðreynd

Efra súluritið sýnir samanburð á hlutfalli umframdauðsfalla á Íslandi og löndum ESB samkvæmt tölum Evrópsku hagfræðistofnunarinnar (Eurostat).

Neðra súluritið sýnir niðurstöður útreikninga embættis Landlæknis á hlutfalli umframdauðsfalla. Við útreikninga landlæknis er tekið tillit til mannfjöldaþróunar á tímabilinu.Umframdaudsfoll Landl Eurostat jul til jan 2024

Á súluritunum má sjá að á Íslandi deyja hlutfallslega fleiri í mánuði hverjum en í löndum ESB. Einu gildir hvernig staðið er að útreikningnum. Jafnframt má sjá á súluritunum afleiðingar covid bólusetningarátaks sóttvarnarlæknis sem hófst í október s.l.

Tímabært er að stjórnvöld og alþingismenn horfist í augu við þá skelfilegu staðreynd að ekkert lát er á ótímabærum dauðsföllum landsmanna sem tugum saman látast fyrir aldur fram í mánuði hverjum.

Tafla EurostatEurostat jan 2024


522% fjölgun samþykktra umsókna um bætur

Dr. William Makis læknir og sérfræðingur á sviði ónæmis, krabbameins og röntgen greinir í pósti frá hvernig Covid-19 bólusettum vegnar áberandi verr í og eftir skurðaðgerðir. Bólusettir séu í aukinni hættu á að fá blóðtappa í aðgerð eða stuttu eftir með alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum.

Samkvæmt tölum breskra stjórnvalda varð mikil fjölgun samþykktra umsókna um bætur (Personal Independence Payment PIP) þar í landi eftir að byrjað var að bólusetja gegn covid. Fjölgaði samþykktum umsóknum um bæturnar af blóðtengdum ástæðum milli áranna 2020 til 2022 um 522%. Fjölgun samþykktra umsókna um bætur vegna blóðtappatengdra sjúkdóma var 162% og blóðflögutengdar ástæður lágu að baki 221% fjölgun umsókna.

Ekki er unnt að skýra þessa miklu fjölgun með “long covid” að mati sérfræðilæknisins. Telur hann einsýnt að bótaþörfin stafi af völdum Covid-19 bóluefnanna.

En hvað er til ráða ef þú hefur þegið covid bóluefni og átt ekki annarra kosta völ en að fara í uppskurð? Dr. Makis ráðleggur þér að upplýsa læknana um að þú sért covid bólusett/ur og því í aukinni hættu á að fá blóðtappa í aðgerðinni eða stuttu eftir.PIP voxtur 20 22

Makis um blodtappa kvenna


Eru manngerðar hamfarir í farvatninu – aftur?

Þegar stofnendur fyrirtækja og stærstu eigendur selja hlutabréf í fyrirtækjum sínum er eftir því tekið á verðbréfamarkaði:

  • Bezos, stofnandi Amazon, seldi hlutabréf í fyrirtækinu á 9 viðskiptadögum í febrúar fyrir USD 8,5 milljarða eða 1.190 milljarða ISK. Til samanburðar eru áætlaðar tekjur íslenska ríkisins samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2024 1.356 milljarðar.
  • Zuckerberg, stofnandi Facebook, innleysti 50 milljón hluti í nóv. og des. á síðasta ári fyrir USD 400 milljónir. Salan er sú fyrsta í tvö ár.
  • Forstjóri JFMorgan, Dimon, seldi fyrir USD 150 milljónir og vekur salan sérstaka athygli þar sem hún er sú fyrsta á 18 ára ferli hans sem forstjóra fjárfestingabankans.

Move along, nothing to see here - kann einhver að segja. Mennirnir eru aðeins að innleysa lítinn hluta hlutabréfaeignar sinnar eftir mikla hækkun hlutabréfaverðs. Kannski. En þegar sölurnar eru metnar í samhengi þá kunna þær að vera vísbending um og undanfari atburða sem munu hafa markverð áhrif til lækkunar á hlutabréfamarkaði.

Í hugann kemur fleyg setning úr Oscars verðlaunaðri kvikmynd frá 1980 hvers heiti kann að lýsa komandi atburðum á markaði; „I love the smell of napalm in the morning.”


Svo lengi lærir sem lifir

Ástralski prófessorinn Robert Clancy, klínískur ónæmisfræðingur og frumkvöðull á sviði slímhúðarónæmisfræði (hefur skrifað 260 ritgerðir um efnið) miðlaði af visku sinni í kvöldverði hvers vegna Covid-19 bóluefnin virkuðu ekki sem smitvörn:

SARS-CoV-2 veiran fjölgar sér hratt í slímhúð nefgangna og smitast því til nálægra einstaklinga löngu áður en veiran kemst niður í loftskiptasvæði lungnanna og mætir þar mótefnum í blóði. Þessi vitneskja um hegðun öndunarfæra vírusa, eins og þeirra sem valda kvefi og inflúensu, hefur legið fyrir lengi og SARS-CoV-2 veiran hagar sér með hliðstæðum hætti.

Því hefur legið fyrir frá upphafi að Covid-19 bóluefnin myndu ekki forða okkur frá smiti eða að við smituðum aðra af völdum veirunnar. Landsmenn hefðu þegið vitneskju fyrirfram um gagnsleysi efnanna sem smitvarnar til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun fyrir sig og sína um skynsemi þess að þiggja covid mRNA bóluefnið.

Við náum ekki að breyta fortíðinni með covid mRNA efnin og eigum mörg hver eftir að bíta úr nálinni með skaðann. En við getum dregið af henni lærdóm. Lyfjaframleiðendur hafa verið áskrifendur að digrum fyrirhafnalausum tekjustraumi í formi hagnaðar af framleiðslu og sölu inflúensubóluefna um heim allan um áratuga skeið. Stefnt er að breyttu framleiðsluferli inflúensubóluefna þannig að efnin verði framleidd á sama grunni og covid mRNA efnin þar sem kostnaður á hverja framleidda einingu lækkar. Þegar sóttvarnarlæknir fer að mæla með nýju mRNA inflúensuefnunum skulum við hafa frásögn ástralska ónæmisfræðingsins af gagnsleysi öndunarfæra bóluefnanna sem smitvarnar í huga áður en við brettum upp ermina.


Þegar maður hélt að þetta gæti ekki orðið verra

Margra sentimetra langir trefjakenndir tappar eða þykkildi hafa frá miðju ári 2021 fundist við smurningu (embalming) í fjölda tilvika í æðum bólusettra einstaklinga. Við smurningu eru líkin tæmd blóði og líkamsvessum í rotvarnarskini m.a. til að gera flutning hins látna mögulegan þar sem fjarlægðir eru miklar eins og í Bandaríkjunum. Hérlendis duga kælar til að varðveita líkin fram að greftrun.

Fyrir tíma covid mRNA bóluefnanna hafði þessara þykkilda ekki orðið vart. Útfararstofur hafa fengið takmarkaðar undirtektir þegar þær hafa vakið athygli á þessu áður óþekkta fyrirbæri. Kaflaskil hafa nú orðið þar sem þykkildið hefur greinst í dreni eftir skurðaðgerð á bólusettum einstaklingi. Því þarf ekki lengur að deila um tilvist trefjakenndra tappanna.

Minnkað blóðflæði af völdum tappanna kann að leiða til margvíslegra sjúkdómseinkenna. Kallað er eftir tafarlausri stöðvun á notkun mRNA efnanna meðan skýringa er leitað á tappamynduninni.

Calamari blood clots

Tappamyndun


Krabbinn er næsta seðlaprentunarvélin

Lyfjaframleiðendur fjárfesta sem enginn sé morgundagurinn í fyrirtækjum sem hafa sérhæft sig í framleiðslu á lyfjum til lækninga á krabbameini. (sjá klippu úr pósti Dr. Makis). Ljóst er af verðlagningunni að lyfjaframleiðendur gera ráð fyrir faraldri krabbameins á komandi árum. Merki þess sem í vændum er má þegar sjá þar sem mikill vöxtur hefur verið í nýgengi krabbameins. Jafnframt hefur í kjölfar bólusetninganna orðið áberandi fjölgun á tilvikum krabbameins sem talið var að tekist hefði að lækna en sem hafa tekið sig upp á nýjan leik.

Dauðsföllum af völdum illkynja krabbameins hefur fjölgað víða í kjölfar bólusetninganna. Það á við hérlendis þar sem dánarmeinaskrá landlæknis fyrir árið 2022 greinir frá 9% fjölgun látinna af völdum illkynja krabbameins frá fyrra ári.

Í neðri klippunni skýrir Albert Bourla, forstjóri Pfizer, fyrir fjárfestum hvar hann sér framtíðarvöxt fyrirtækisins liggja. Heldur nöturleg framtíðarsýn frá sjónarhóli almennings.Turbo cancer big pharma race

Forstjori Pfizer um turbocancer

 


Sóttvarnaryfirvöld og glataða traustið

Mikilvægur mælikvarði á trúverðugleika bóluefna er hvort heilbrigðisstéttir í framlínu, sem eru í mestri nánd við sjúklinga, láta sprauta sig. Efra súluritið sýnir hvernig traust breskra heilbrigðisstétta hefur hrunið á covid-bóluefnunum. Þannig afþökkuðu 60,5% lækna örvunarbólusetningu vetrarins við covid. Tiltrú hjúkrunarkvenna á covid bóluefninu er minni þar sem 71,6% afþökkuðu örvunarsprautuna. Einungis 30,6% heilbrigðisstéttanna hafa þegið nýjustu örvunarbólusetninguna.

Meira en helmingur eldri borgara á Íslandi fer ekki lengur að ráðleggingum sóttvarnarlæknis sem endurspeglast í þátttöku þeirra í covid bólusetningarátakinu sem hófst í október s.l. Þannig afþökkuðu 75% þeirra sem eru á aldrinum 60 til 70 ára covid sprautu vetrarins. Í aldurshópnum 70 til 79 afþökkuðu 57% bólusetningu og í hópi 80 ára og eldri þáðu einungis 46% mRNA efnið.

Sóttvarnaryfirvöld á Bretlandseyjum eiga ekki lengur traust heilbrigðisstétta. Það sést glögglega á neðra súluritinu sem sýnir að meira en helmingur heilbrigðisstéttanna bresku hafnar inflúensubóluefninu. Tölur um bólusetningar íslenskra heilbrigðisstétta eru ekki lengur birtar.Bolusetn uk health covid infl years


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband