Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2024

Af talnameðferð embættis landlæknis 3

Þvert á betri vitund og heilbrigða skynsemi ákvað embætti landlæknis að hefja covid mRNA örvunarbólusetningar að nýju um miðjan október s.l. eftir að hafa gert hlé á bólusetningum frá lokum apríl. Stjórnendum hlaut að vera kunnugt um fjölda niðurstaðna ritrýndra rannsókna sem sýna með óyggjandi hætti fram á skaðsemi bóluefnanna. Mikill fjöldi umframdauðsfalla á Íslandi er staðreynd hvernig sem er reiknað og Ísland mælist með þeim löndum í Evrópu mánuð eftir mánuð sem flest umframdauðsföllin hafa.

Þrátt fyrir þessa vitneskju taka þær ákvörðun um að hefja bólusetningar að nýju um miðjan október. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa þegar dauðsföllum fjölgaði mikið í kjölfarið.

En dauðsföllin eru einungis toppurinn á ísjakanum. Skaðsemi bóluefnanna fer ekki fram hjá starfsemi bráðadeilda Landspítala. Dvalardögum á bráðamóttöku fjölgaði um 8% í nóvember frá fyrra mánuði. Ekkert lát var á innlögnum á bráðamóttökuna í byrjun desember. Með þessu miklu veikindi og fjölgun dauðsfalla gátu stjórnendurnir ekki lengur komist hjá að horfast í augu við skaðann sem ákvörðunin um að hefja bólusetningar að nýju í október hafði valdið.

Sterkar vísbendingar eru um að stjórnendur embættis landlæknis hafi fært dánarorsakir af völdum mRNA bóluefnanna yfir á covid veiruna á árinu 2022. Til þess að hægt yrði með trúverðugum hætti að endurtaka blekkinguna vegna dauðsfallanna í kjölfar bólusetninganna sem hófust í október þurfti að greina fleiri covid smit í haust og vetur. Því taka þær ákvörðun um að fjölga vikulegum covid greindum um 100% afturvirkt til og með viku 35 til að búa í haginn með hagræðingu dánarorsaka af bóluefni yfir á veiru þannig að ekki félli skuggi á mRNA bóluefnin.Dvalardagar a bradamottoku sept 23 feb 24

Umframdaudsfoll Landl Eurostat jul til jan 2024


Falsanir talna virðist venja en ekki undantekning

Fleiri dæmi eru borðleggjandi um falsanir embættis landlæknis sem gerðar eru í því skyni að hylja eyðileggingarslóð covid mRNA bóluefnanna. Sýnt hefur verið fram á falsanir embættisins á tölum um fjölda einstaklinga sem greindust með Covid-19 frá og með viku 35 á síðasta ári. Tölurnar er birtar vikulega í fréttabréfi um öndunarfærasýkingar. Fréttabréfið fyrir viku 48, sem gefið var út 7. desember tvöfaldaði fjölda þeirra einstaklinga sem greinst höfðu með Covid-19 frá viku 35 í fyrra. Til fölsunar var gripið þegar þeim var ljós mikil fjölgun dauðsfalla í kjölfar mRNA örvunarbólusetninganna sem illu heilli hófust að nýju um miðjan október.

Vorið 2022 var mikið um umframdauðsföll í kjölfar örvunarbólusetningarátaks vetrarins. Á þessum tíma var að renna upp fyrir stjórnendum embættisins að bóluefnin voru orsakavaldurinn. Til að leyna almenning staðreyndunum var ákveðið að segja umframdauðsföllin af völdum sjúkdómsins en ekki mRNA efnanna. Reyndar sætti þáverandi sóttvarnalæknir sig ekki við að verða þátttakandi í blekkingunni sem í uppsiglingu var og lét af störfum um vorið ári fyrir aldur fram.

Blekkingu embættis landlæknis með dánarorsakir af völdum bóluefnanna á árinu 2022 má skýra í löngu máli og styðja ýmsum tölum. En súluritin að neðan duga í þessu bloggi. Á súluritinu sýna bláu súlurnar dauðsföll á Landsspítalanum fram til sept. 2022 þegar birtingu talna var hætt og rauðu súlurnar dauðsföll af völdum covid yfir sömu mánuði samkvæmt landlækni. Neðri klippan er af síðu landlæknis um látna af völdum covid á árinu 2022.

Ef einhver trúir því að í mars 2022 hafi 75 (86–11=75) látist utan Landsspítalans af völdum covid er hann vinsamlegast beðinn um að rétta upp hönd. Viðkomandi þarf ekki að fyrirverða sig fyrir að vera svo auðtrúa. Hann er hópi með Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra.Andlat sjukling covid landsp landl 2022

Covid 19 fjoldi eftir manudum 2022 Landl


Tafarlaus stöðvun og þó fyrr hefði verið

Framsögu Dr. Jessicu Rose PhD fyrir nefnd öldungardeildar bandaríska þingsins um Covid-19 fylgdu nokkrar glærur:

Klippan sýnir að frá því að VAERS gagnagrunnurinn var tekinn í notkun 1990 hafa að meðaltali 39.000 skaðatilkynningar borist árlega í gagnagrunninn. En á árinu 2021 fjölgaði skaðatilkynningum í gagnagrunninn úr 49.640 á árinu 2020 í 753.047. Megnið af þeim vegna Covid.Senat VAERS fjoldi klippa 1

Eftirfarandi klippa sýnir fjölda skaðatilkynninga í VAERS gagnagrunninn fyrir hverja eina milljón bóluefnaskammta. Vinstra megin skaðatilkynningar vegna inflúensu og covid. Hægra megin sýna súlurnar tilkynningar um dauðsföll pr./eina milljón sprautuskammta í kjölfar bólusetninga á sömu árum.Senat AE reports per million klippa 2

Klippan að neðan sýnir orsakasamband bólusetninga og skaðatilkynninga um hjartavöðvabólgu. Grafið byggir á tölum úr gagnagrunni World in Data.Senat hjartabolgur og mRNA klippa 3

Síðasta klippan sýnir skaðatilkynningar um hjartavöðvabólgu af völdum Covid bóluefnanna eftir aldri bóluefnaþegans. Senat hjartabolgur eftir aldri klippa 4

Dr. Jessica Rose telur einsýnt að öll skilyrði séu uppfyllt til tafarlausrar stöðvunar á notkun Covid mRNA bóluefnanna.


Sóttvarnalæknir falsar tölur um Covid-19

Öndunarfærasýkingar nefnist rafrænt fréttabréf sóttvarnalæknis sem gefið er út yfir vetrarmánuðina. Þar er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra á Íslandi sem og stöðu öndunarfærasýkinga í Evrópu. Ábyrðarmaður fréttabréfsins er Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir.

Eftirfarandi er úr fréttabréfinu fyrir vikur 47 og 48 2023. Fyrsta setningin í bréfinu fyrir viku 48 er feitletruð til að vekja athygli lesandans á ásetningnum sem býr að baki fölsuninni: (klippur að neðan)

Vika 47:

Í viku 47 greindust 55 einstaklingar með COVID-19 með PCR prófi, færri en í viku 46. Hlutfall jákvæðra prófa var 21% (mynd 1)

Vika 48:

Fjöldi COVID-19 greininga í haust hefur verið nokkuð stöðugur og heilt yfir eru ekki merki um aukningu. Í viku 48 greindust 97 einstaklingar með COVID-!9, annað hvort staðfest með PCR-prófi eða með klínískri greiningu. Hlutfall jákvæðra prófa af heildarfjölda greindra sýna hefur einnig verið nokkuð stöðugt frá upphafi hausts og sveiflast í kringum 20% (mynd 1).

Fréttabréfið um öndunarfærasýkingar fyrir viku 48, sem gefið var út 7. desember s.l., markar kaflaskil þar sem stjórnendur embættisins hafa þá tekið ákvörðun um að gefa opinberlega rangar upplýsingar og tvöfalda fjölda þeirra einstaklinga sem greinst hafa með Covid-19 frá og með viku 35.

Ávörðun um birtingu rangra talna endurspeglar örvæntingu stjórnenda þar sem ljóst er að gerningur af þessum toga hlýtur að leiða til æru- og starfsmissis. TIl örþrifaráðsins er gripið þegar þeim er ljós mikil fjölgun dauðsfalla í kjölfar mRNA örvunarbólusetninganna sem illu heilli hófust að nýju um miðjan október.

Á árinu 2022 var gripið til þess ráðs að segja umframdauðsföllin af völdum veirunnar en ekki mRNA efnanna. Til þess að blekkingin gæti heppnast að nýju var nauðsynlegt að „fjölga” einstaklingum með sjúkdóminn.

Heilbrigðisráðherra, þingmenn og umboðsmaður Alþingis hljóta að taka ranga upplýsingagjöf embættis landlæknis til rannsóknar. Staða embættisins sem framleiðanda hagtalna hlýtur að þurfa að endurmeta. Trúverðugleiki íslenskra hagtalna sem byggir á samstarfssamningi embættis landlæknis og Hagstofu Íslands frá í mars 2023 verður vera án nokkurs vafa.

Vika 47 klippa covid greindir 2023

Vika 48 klippa covid greindir 2023


Átakanlega illa upplýstur ráðherra

Hverfandi umræða á sér stað á Íslandi um fyrirhugaðar breytingar á reglum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og nýja faraldurssáttmálann. Forstjóri stofnunarinnar endurtekur við hvert tækifærið á öðru ranga fullyrðingu um að breytingarnar muni ekki fela í sér framsal ákvarðana um faraldursviðbrögð frá aðildarlöndum til stofnunarinnar. Af eftirfarandi svari Willum Þórs Þórssonar við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar á Alþingi 27.11.23 sýnist forstjóranum hafa tekist að blekkja íslensk heilbrigðisyfirvöld:

„Ég get hins vegar fullyrt varðandi það sem hefur kannski verið í umræðunni um að stjórn heilbrigðismála sé með einhverju marki með þessari reglugerð komin yfir til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, á þeim ákvörðunum sem við tökum hér í íslensku heilbrigðiskerfi, að það er það ekki þannig. Það er ekki þannig. Stefnumótunin á sér ekki stað þar. Stefnumótunin á sér stað hér og við fylgjum henni og við fylgjum íslenskri stjórnarskrá og við fylgjum íslenskum lögum og við tökum ákvarðanir hér á Alþingi um það sem við viljum sjá í íslensku heilbrigðiskerfi. Það er staðfest og ég hef spurt eftir því.”

Eins og hlekkjuð frétt og umfjöllun á heimasíðu Brownstone Institute bera með sér horfir illa fyrir þjóðinni vegna yfirgripsmikillar vanþekkingar ráðherra og hans helstu sérfræðinga í málaflokknum.Why does WHO make false claims


Af Amish börnum

Það þarf ekki frekar vitnanna við.

Af Amish bornum


Hjartatengd útköll sjúkrabíla

Afgerandi vísbending um skaðsemi mRNA efnanna sést á meðfylgjandi súluriti sem sýnir hjartatengd útköll sjúkrabíla vegna 30 ára og yngri á árunum 2017 til og með mars 2022 í West Midland UK. Hvernig rauðar súlur ársins 2021 taka stökk á vormánuðum og haldast háar út árið og fyrstu 3 mánuði ársins 2022 tekur af allan vafa um skaðsemi mRNA efnanna en bólusetningar hófust vorið 2021.Utkoll sjukrabila Midland hjartatengd tilvik


Ofgerum ekki ónæmiskerfi barnanna

Mikil fjölgun barna með króníska sjúkdóma á liðnum árum veldur áhyggjum. Reynslan af covid efnunum gefur fullt tilefni til að ganga úr skugga um hvort barnabóluefnin eigi hlut að máli. Vitað er að ekkert barnabóluefnanna hefur verið reynt í hefðbundinni langtíma klínískri lyfjarannsókn.

Þegar horft er á klippuna af barnaprógrammi CDC fyrir yfirstandandi ár er erfitt að verjast þeirri hugsun að verið sé að ofgera ónæmiskerfi barnanna og heilsufarslegir hagsmunir þeirra hafi verið látnir víkja. Íslenska barnaprógrammið er með færri bólusetningum án þess að komið hafi niður á heilsufari barnanna. Heilbrigði barna Amishfólksins er með ágætum þrátt fyrir að börnin þeirra séu bólusett sjaldnar en víðast hvar. 

Tidni einhverfu USA spa

CDC barnaboluefnaprogram 2024


Af heilsubresti Kate Middleton

Eftir því sem lengra líður frá kviðarholsaðgerð Prinsessunnar af Wales fjölgar þeim sem telja að veikindin séu alvarlegri en frásagnir konungshallarinnar gefa til kynna. Dr. William Makis læknir og sérfræðingur á sviði ónæmis, krabbameins og röntgenlækninga veltir stöðunni fyrir sér í eftirfarandi klippum:KM 1

KM 2

KM 3

KM 4


Einu gildir hvernig reiknað er – ótímabæru dauðsföllin eru staðreynd

Efra súluritið sýnir samanburð á hlutfalli umframdauðsfalla á Íslandi og löndum ESB samkvæmt tölum Evrópsku hagfræðistofnunarinnar (Eurostat).

Neðra súluritið sýnir niðurstöður útreikninga embættis Landlæknis á hlutfalli umframdauðsfalla. Við útreikninga landlæknis er tekið tillit til mannfjöldaþróunar á tímabilinu.Umframdaudsfoll Landl Eurostat jul til jan 2024

Á súluritunum má sjá að á Íslandi deyja hlutfallslega fleiri í mánuði hverjum en í löndum ESB. Einu gildir hvernig staðið er að útreikningnum. Jafnframt má sjá á súluritunum afleiðingar covid bólusetningarátaks sóttvarnarlæknis sem hófst í október s.l.

Tímabært er að stjórnvöld og alþingismenn horfist í augu við þá skelfilegu staðreynd að ekkert lát er á ótímabærum dauðsföllum landsmanna sem tugum saman látast fyrir aldur fram í mánuði hverjum.

Tafla EurostatEurostat jan 2024


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband